Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Auglýsing um deiliskipulagsbreytingu í Garðabæ - Kjóavellir

17.2.2020

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögur að breytingu deiliskipulags hesthúsabyggðar að Kjóavöllum í samræmi við 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 1 mgr. 43. gr. sömu laga.

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögur að breytingu deiliskipulags hesthúsabyggðar að Kjóavöllum í samræmi við 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 1 mgr. 43. gr. sömu laga.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir breytingum á legu byggingareita ofan götu í Rjúpnahlíð og svæði fyrir heygeymslu. Tillagan gerir ekki ráð fyrir breytingum innan lögsögu Kópavogs.

Tillögurnar eru aðgengilegar hér á vef Garðabæjar, gardabaer.is og í þjónustuveri. Þeir sem telja sig eiga hagsmuni að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir til og með 30. mars 2020, annað hvort á netfangið skipulag@gardabaer.is eða á bæjarskrifstofur Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.

Tækni-og umhverfissvið Garðabæjar

Kjóavellir - tillögur að breytingu deiliskipulags hesthúsabyggðar