Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.


Bæjargil - Deiliskipulag

30.5.2024

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi Bæjargils (1984) í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. gr. 43. sömu laga.

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi Bæjargils (1984) í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. gr. 43. sömu laga.

Markmið endurskoðunar deiliskipulagsáætlunarinnar er að uppfæra skilmála og uppdrætti, taka tillit til þeirrar krafna sem umgjörð skipulagsmála gerir í dag og færa inn þær breytingar sem gerðar hafa verið á einstökum stöðum í tímans rás.

Ekki er um grundvallar breytingar að ræða á þeim áætlunum sem stuðst var við í uppbyggingu byggðarinnar á sínum tíma.

Tillagan gerir ráð fyrir því að deiliskipulagssvæðið nái ekki til Gilsbúðar sem er felld undir deiliskipulag athafnasvæðis í Búðum sem auglýst er samhliða tillögunni.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn rafrænar athugasemdir til og með 15. júlí 2024 í gegnum vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is (Mál: 225/2024) eða á netfangið skipulag@gardabaer.is.