Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.


Búðir athafnasvæði - Deiliskipulag

30.5.2024

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að endurskoðuðu deiliskipulagi athafnasvæðis í Búðum (Iðnbúð/Smiðsbúð/Gilsbúð) í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. gr. 43. sömu laga.

Bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt að vísa tillögu að endurskoðun deiliskipulags Búða, athafnasvæðis til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagið er upphaflega frá árinu 1978 en var breytt 1989 og 2003. Það náði til Iðnbúðar og Smiðsbúðar en tillagan sem nú er auglýst gerir ráð fyrir því að það nái einnig til Gilsbúðar.

Markmið endurskoðunar deiliskipulagsáætlunarinnar er að uppfæra skilmála og uppdrætti, taka tillit til þeirrar krafna sem umgjörð skipulagsmála gerir í dag og færa inn þær breytingar sem gerðar hafa verið á einstökum stöðum í tímans rás.

Ekki er um grundvallar breytingar að ræða á þeim áætlunum sem stuðst var við í uppbyggingu byggðarinnar á sínum tíma með þeim breytingum sem hafa verið gerðar.

Í deiliskipulagi athafnasvæðis er gert ráð fyrir breytingum á fyrirkomulagi bílastæða í Gilsbúð og nýtingarhlutfall breytist til samræmis við breytingar sem hafa verið gerðar á mörgum lóðum.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn rafrænar athugasemdir til og með 15.júlí 2024 í gegnum vef skipulagsgáttar, www. skipulagsgatt.is (Mál: 223/2024) eða á netfangið skipulag@gardabaer.is.