Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.
Eskiás - Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til fjölbýlishúsabyggðar við Eskiás í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. gr. 43. sömu laga.

Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða við Eskiás eykst um 22 eða úr 276 í 298.
Einnig að byggingarreitum á lóðunum nr. 7 og 10 við Eskiás verði breytt, þannig að þær íbúðargerðir sem þróaðar hafa verið á svæðinu gangi vel upp á lóðunum. Auk þess gerir tillagan ráð fyrir því að hámarkshæðafjöldi hækki úr tveimur í þrjár hæðir á lóðinni nr.10 og á nyrðri byggingarreit meðfram Eskiási á lóðinni nr. 7.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn rafrænar athugasemdir til og með 15.júlí 2024 í gegnum vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is (Mál: 668/2024) eða á netfangið skipulag@gardabaer.is.