Eskiás
10.3.2021
Tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda
Garðabær auglýsir hér með tillögu að breytingu á
deiliskipulagi Ása og Grunda í samræmi við 1. mgr. 31.
gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu
laga.
Tillagan gerir ráð fyrir að hæðir húsa við Eskiás 2, 4 og
6 lækki um eina hæð og heimilað verði að fjölga íbúðum
í öðrum húsum sem nemur fækkun íbúða vegna
lækkunar um hæð. Hámarkshæðir annarra húsa verða
óbreyttar. Byggingarreitir lóðanna Eskiás 8 og 10
breytast þannig að þar verða lokaðir inngarðar.
Heildarfjöldi íbúða verður óbreyttur eða 276 íbúðir.
Tillagan er aðgengileg á vef Garðabæjar,
www.gardabaer.is, og í þjónustuveri.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn
kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir til
og með 21. apríl 2021 annað hvort á netfangið
skipulag@gardaber.is eða á bæjarskrifstofu
Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.
Arinbjörn Vilhjálmsson
Skipulagsstjóri Garðabæjar