Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Kauptún 1

24.5.2022

Kauptún 1, tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns

Í samræmi við 1.mgr.43.gr. og 1.mgr.41.gr. skipulagslaga nr. 123/2010 auglýsir Garðabær hér með eftirfarandi breytingartillögu á deiliskipulagsáætlunum.

Kauptún 1, tillaga að breytingu deiliskipulags Kauptúns

Tillagan gerir ráð fyrir stækkun á byggingareits og aukningu byggingarmagns . Byggingarreitur stækkar um 766 m2, þar af 149 m2 til vesturs vegna fyrirhugaðs anddyris en um 617 m2 til austurs að lóðarmörkum. Hámarksbyggingarmagn er aukið úr 8.100 m2 í 8.400 m2.

Kauptún breyting á deiliskipulagi 2-01 Skipulag
Kauptún 1 - Skýringa teikningar

Tillagan er aðgengileg á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is, og í þjónustuveri.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir til og með 05.07.2022 annað hvort á netfangið skipulag@gardabaer.is eða á bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.