Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Urriðaholt skjólveggir. Tillaga að deiliskipulagsbreytingum

23.1.2020

Vesturhluti Urriðaholts, norðurhluti Urriðaholts áfangar 1, 2 og 3 & austurhluti Urriðaholts.

Á fundi bæjarstjórnar þann 19.12.2019 samþykkti bæjarstjórn að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts, 1., 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts og austurhluta Urriðaholts. Tillagan varðar skjólveggi, stoðveggi, girðingar og dvalarsvæði á lóðum. Tillaga að deiliskipulagi norðurhluta 4 gerir ráð fyrir sömu ákvæðum. 

Tillögurnar liggja frammi á bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorgi 7, frá 23. janúar til og með 5. mars 2020 og á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast í síðasta lagi þann 5. mars næstkomandi annaðhvort á bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorg 7 210 Garðabæ, eða á netfangið skipulag@gardabaer.is

Arinbjörn Vilhjálmsson
skipulagsstjóri