Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Urriðaholtsstræti 42. Breyting á deiliskipulagi

18.9.2020

Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluti 3. áfangi og háholt.

URRIÐAHOLTSSTRÆTI 42, TILLAGA AÐ BREYTINGU Á DEILISKIPULAGI URRIÐAHOLTS, NORÐURHLUTI 3. ÁFANGI OG HÁHOLT.

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu deiliskipulags í samræmi við 1. mgr. 41 gr. skipulagslaga nr. 123/2010 sbr. 1 mgr. 43. gr. sömu laga.

Tillagan gerir ráð fyrir að íbúðum verði fjölgað um eina, úr 9 íbúðum í 10 íbúðir, bílastæðum fjölgar sem því nemur.

Tillagan er aðgengileg á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is og í þjónustuveri.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir til og með 30. október 2020, annað hvort á netfangið skipulag@gardabaer.is eða á bæjarskrifstofur Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.