Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Víðholt, Álftanesi, deiliskipulag íbúðarbyggðar

14.12.2022

Samþykkt: Þann 6.október sl samþykkti Bæjarstjórn Garðabæjar tillögu að deiliskipulaginu Víðiholt Álftanesi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var samþykkt að tillögu skipulagsnefndar frá fundi þann 27. september.

Samþykkt: Þann 6.október sl samþykkti Bæjarstjórn Garðabæjar tillögu að deiliskipulaginu Víðiholt Álftanesi í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var samþykkt að tillögu skipulagsnefndar frá fundi þann 27. september.

Gildistaka : Deiliskipulagið tekur gildi þegar að auglýsing birtist í B-deild Stjórnartíðinda. Deiliskipulagið hefur verið sent Skipulagsstofnun til athugunar.

Svör við innsendum athugasemdum:

Samþykkt deiliskipulag:

Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.

Í samræmi við 2. mgr. 31. gr. og 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með auglýst.