Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.


Arnarnesland - Akrar - Deiliskipulagsbreyting

28.11.2024

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu deiliskipulags Arnarneslands - Akrar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu deiliskipulags Arnarneslands - Akrar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Tillagan gerir ráð fyrir því að tenging Akrabrautar að undirgöngum undir Arnarnesveg yfir í Arnarland færist austar og fjær aðkomu að fjölbýlishúsinu við Hofakur.



Tillagan er einnig aðgengileg á vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is (mál: 1388/2024).

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gerfinn kostur á að senda inn rafrænar athugasemdir til og með 20. janúar 2025 í gegnum vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is, eða á netfangið skipulag@gardabaer.is