Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Breyting á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030, Urriðaholt, og breyting á deiliskipulagi Urriðaholts, Norðurhluta 4.

Skipulagslýsing

15.6.2021

Skipulagslýsing

Þann 3. júní 2021 samþykkti bæjarstjórn Garðabæjar skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðrar breytingar á
Aðalskipulagi Garðabæjar 2016 -2030 og deiliskipulags Urriðaholts norðurhluta 4. Í væntanlegri deiliskipulagsbreytingu er til skoðunar að gera ráð fyrir 70-80 íbúðum fyrir 50 ára og eldri á lóð Urriðaholtsstrætis 9 í stað atvinnuhúsnæðis. Til að opna fyrir heimildir fyrir uppbyggingu íbúðarhúsnæðis af þessu tagi er stefnt að því að breyta skilmálum í aðalskipulagi Garðabæjar fyrir svæðið norðan Urriðaholtsstrætis þannig að heimildir fyrir íbúðarhúsnæði verði rýmkaðar.

Með vísan í 30. gr. og 40. gr. skipulagslaga er skipulagslýsing lögð fram til kynningar á heimasíðu
Garðabæjar, www.gardabaer.is, og í þjónustuveri Garðabæjar, Garðatorgi 7.

Þeir sem telja sig eiga hagsmuni að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar ábendingar. Frestur til að skila inn ábendingum er til og með 27. júlí 2021. Skila skal ábendingum á bæjarskrifstofu Garðabæjar eða á netfangið skipulag@gardabaer.is