Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Hraunholtslækur - Ægisgrund

30.4.2019

Breyting á aðalskipulagi og deiliskipulagi - forkynning og íbúafundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar auglýsir hér með forkynningu á eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu í samræmi við 2. mgr. 30. greinar skipulagslaga nr. 123/2010 og eftirfarandi deiliskipulasáætlun í samræmi við 3. mgr. 40. gr. sömu laga.

Hraunsholtslækur - Ægisgrund. Tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016 - 2030.

Tillagan gerir ráð fyrir að landnýtingarreitur 2.09 Op breytist úr opnu svæði í svæði fyrri samfélagsþjónustu. Tillagan er áform um byggingu húsnæðis fyrir Alþjóðaskólann.

Hraunsholtslækur - Ægisgrund. Tillaga að breytingu deiliskipulags Ása - og Grunda.

Tillagan gerir ráð fyrir lóð og byggingarreit fyrir byggingu Alþjóðaskólans. Tillagan er áform um byggingu húsnæðis fyrir Alþjóðaskólann. Hámarksbyggingarmagn er 1.600 m2 en grunnflötur 800 m2.

Tillögurnar eru aðgengilegar á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is og í þjónustuveri.

Almennur kynningarfundur vegna ofangreindra tillagna verður haldinn í Flataskóla mánudaginn 6. maí og hefst hann klukkan 17:00.

Ábendingum vegna tillagnanna skal skila í þjónustuver eða senda þær með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir 9. maí 2019.

Að lokinni forkynningu verður unnið úr ábendingum en þeim verður ekki svarað með formlegum hætti.

Í kjölfar úrvinnslu verður tillögum vísað til endanlegrar auglýsingar. Þá verður gefinn kostur á að senda inn athugasemdir og þeim verður svarað með formlegum hætti.