Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.
Miðbær - Deiliskipulagsbreyting - Forkynning
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu á deiliskipulagi miðbæjar Garðabæjar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu deiliskipulagi Miðbæjar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Miðbær Garðabæjar - Deiliskipulagsbreyting
Tillagan nær til lóðanna Garðatorg 1 (Bónus og Hönnunarsafn),
Garðatorg 5A (yfirbyggð göngugata) og Hrísmóar 19 (bílastæðalóð).
Tillagan gerir ráð fyrir um 60 íbúðum í 6 hæða nýbyggingu í
norðurhluta byggingarreits Garðatorgs 1 og á suðurhluta
byggingareits er gert ráð fyrir 4 hæða atvinnuhúsnæði.
Tillagan er aðgengileg á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is og á vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is (mál: 1393/2024).
- Miðbær Garðabæjar - Deiliskipulagsbreyting - Forkynning
- Kynning frá íbúafundi - Forkynning
- Upptaka frá kynningarfundi 27.05.25
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gerfinn kostur á að senda inn rafrænar ábendingar til og með 18. júní 2025 í gegnum vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is