Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.
Móar - Deiliskipulag - Forkynning
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi Móa í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Móar - Deiliskipulag
Tillagan nær til Hrísmóa, Lyngmóa og Kjarrmóa. Að mestu eru þau ákvæði sem stuðst var við í uppbyggingu svæðisins óbreytt. Helstu breytingar frá núverandi ástandi nær til gatnakerfis í Hrísmóum. Markmið þeirra breytinga er að auka öryggi vegfarenda og samspil umferðar við Miðbæ Garðabæjar.
Tillagan er einnig aðgengileg á skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is (mál: 719/2025).
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gerfinn kostur á að senda inn rafrænar ábendingar til og með 18. júní 2025 í gegnum vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is