Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.
Molduhraun
Tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi athafnasvæðis
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu á eftirfarandi deiliskipulagsáætlun í samræmi við 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillaga að endurskoðuðu deiliskipulagi athafnasvæðis.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir hækkun nýtingarhlutfalls, breytingum á kröfum um bílastæði og nýrri athafnalóð við Garðahraun.
Tillögunni er ætlað að leysa af hólmi gildandi deiliskipulag Molduhrauns.
Tillagan liggur frammi á bæjarskrifstofum Garðabæjar, Garðatorgi 7, frá 22.maí 2019 til og með 3. júlí 2019. Hún er einnig aðgengileg á heimasíðu Garðabæjar www.gardabaer.is.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn athugasemdir við tillöguna á netfangið skipulag@gardabaer.is eða í þjónustuver Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ, og skulu þær vera skriflegar. Frestur til þess að skila inn athugasemdum rennur út miðvikudaginn 3. júlí 2019.
Arinbjörn Vilhjálmsson
skipulagsstjóri Garðabæjar