Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.
Urriðaholtsstræti 1-7 - Deiliskipulagsbreyting
Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með tillögu að breytingu deiliskipulags í samræmi við 1. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Deiliskipulagsbreyting Urriðaholts norðurhluta 4. áfanga.
Tillagan nær til lóðanna Urriðaholtsstrætis 1, 3-5 og 7. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir því að lóð nr. 7 breytist úr lóð fyrir atvinnustarfsemi í lóð fyrir fjölbýlishús.
Kynningarfundur vegna deiliskipulagsbreytingar við Urriðaholtsstræti 1, 3-5 og 7 verður haldinn í Sveinatungu, Garðatorgi 7, Garðabæ, 7. apríl kl. 17.00.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn rafrænar ábendingar til og með 8. maí 2025 í gegnum vef skipulagsgáttar, www.skipulagsgatt.is (málsnr. 388/2025).