Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Urriðaholtsstræti 9

23.3.2022

Aðal- og deiliskipulagsbreyting

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030, breyting – Urriðaholt. Breyting á deiliskipulagi Urriðaholts norðurhluta 4 vegna Urriðaholtsstrætis 9.

Í samræmi við 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 36. gr., og 1. mgr. 43. gr. og 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/20210 auglýsir Garðabær hér með tillögur að eftirfarandi breytingum á aðalskipulagi og deiliskipulagi.

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030, tillaga að breytingu vegna norðurhluta Urriðaholts.

Breyting á aðalskipulagi Garðabæjar 2016 - 2030 er vegna svæðis í norðurhluta Urriðaholts og samhliða er auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts 4. áfangi. Í aðalskipulagsgerðinni felst að breyta landnotkun úr verslun og þjónustu í íbúðarbyggð.

Deiliskipulag Urriðaholts norðurhluti 4.

Deiliskipulagsbreytingin fjallar um lóð Urriðaholtsstrætis 9 en áformað er að breyta notkun hennar úr verslun og þjónustu í íbúðir fyrir 50 ára og eldri. Aðalskipulagsbreytingin er gerð samtímis.

Tillögurnar eru aðgengilegar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is, og í þjónustuveri.

Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar athugasemdir til og með 4. maí 2022 annað hvort á netfangið skipulag@gardabaer.is eða á bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ