Útboð: Álftanes miðsvæði - Kumlamýri - gatnagerð og lagnir

26. feb. 2021

Garðabær, Veitur ohf, HS Veitur, Gagnaveita Reykjavíkur ehf (GR) og Míla ehf. óska eftir tilboðum í verkið: Álftanes, Miðsvæði – Svæði 4 – Kumlamýri, Gatnagerð og lagnir.

Samþykkt deiliskipulag fyrir Kumlamýri á Álftanesi gerir ráð fyrir uppbyggingu á fimm einbýlishúsakjörnum á um fimm hektara svæði, með samtals 40 nýjum parhúsalóðum. Verkið felst í nýbyggingu gatna, stíga og gangstétta, lagningu fráveitukerfis, ræsa og mótun ofanvatnsrása. Verktaki skal einnig annast alla vinnu við lagnir veitufyrirtækja á svæðinu.

Helstu magntölur og verkþættir eru:

Gröftur......................................... 37.000m³
Gröftur fyrir veitustofnum............ 15.200m³
Fylling og burðarlög.................... 41.000m³
Losun á klöpp í skurðum ........... 100m³
Fráveitulagnir.............................. 1.600m
Vatns- og hitaveitulagnir.............. 2.100m
Strenglagnir................................ 3.000m
Malbikun...................................... 1500m²
Grassáning...................................... 4.500m²
Þökulögn...................................... 2.000m²

Útboðsgögn má nálgast hér á vef Garðabæjar frá og með mánudeginum 1. mars.

Tilboð verða opnuð á hjá Verkís verkfræðistofu, Ofanleiti 2, 103 Reykjavík, þriðjudaginn 16. mars 2021, kl. 14.00 og skulu tilboð send inn með rafrænum hætti.

Útboðsgögn