Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Lundahverfi

Tillaga að deiliskipulagi

4.11.2019

Tillaga að deiliskipulagi

TILLAGA AÐ DEILISKIPULAGI LUNDAHVERFIS Í GARÐABÆ

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti þann 17.10.2019 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Lundahverfis,
samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga.

Við gerð tillögunnar hefur verið leitast við að viðhalda þeim ákvæðum sem voru hluti af ákvæðum sem
voru hluti af upphaflegu skipulagi Lunda en auk þess eru nú sett ákvæði um nýtingarhlutfall íbúðarhúsa
og skipulag leikskólalóðar Lundabóls. Deiliskipulagstillagan er sett fram á uppdráttum og í greinargerð. Húsakönnun og fornleifaskráning eru einnig lagðar fram til kynningar.

Tillagan liggur frammi á bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorgi 7, frá 4. nóvember 2019 til og með
16. desember 2019
. Einnig er hún aðgengileg hér á vef Garðabæjar. Þeir sem telja sig
eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn athugasemdir við tillöguna. 

Frestur til að skila inn athugasemdum rennur út mánudaginn 16. desember 2019.

Skila skal athugasemdum á bæjarskrifstofu Garðabæjar eða skipulag@gardabaer.is  og skulu þær
vera skriflegar og undirritaðar.

Arinbjörn Vilhjálmsson
skipulagsstjóri