Skipulag í kynningu

Hér má nálgast þau skipulagsmál sem eru í kynningu hjá Garðabæ. Hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér málin.

Athugasemdum eða ábendingum við kynntar tillögur skal skila skriflega til tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar, Garðatorgi 7, eða með tölvupósti á skipulag@gardabaer.is fyrir lok þess dags sem gefinn er upp hverju sinni.


Urriðaholtsstræti 9. Forkynning

8.12.2021

Aðal- og deiliskipulagsbreyting. Forkynning

Breyting á Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 og deiliskipulag Urriðaholts, Norðurhluti 4

Bæjarstjórn Garðabæjar hefur vísað tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Garðabæjar og deiliskipulagi Norðurhluta 4 í Urriðaholti, til forkynningar í samræmi við 2. mgr. 30. gr. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Deiliskipulagsbreytingin fjallar um lóð Urriðaholtsstrætis 9 en áformað er að breyta notkun hennar úr verslun og þjónustu í íbúðir fyrir 50 ára og eldri. Aðalskipulagsbreytingin er gerð til samræmis, til að breyta landnotkun úr verslun og þjónustu í íbúðarhúsnæði á þessu svæði.

Gögn vegna forkynningar eru aðgengileg á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. 

Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að senda inn skriflegar ábendingar til og með 12.01.2022 á netfangið skipulag@gardabaer.is eða á bæjarskrifstofu Garðabæjar, Garðatorgi 7, 210 Garðabæ.