Samþykkt og gildistaka skipulagsáætlana

Hér má nálgast upplýsingar um samþykktir bæjarstjórnar og gildistöku þeirra deiliskipulagsáætlana sem gerðar voru athugasemdir við í auglýsingaferli. Upplýsingarnar varða deiliskipulagsáætlanir sem voru samþykktar frá október 2019.

Upplýsingar um samþykktir og gildistöku annarra deiliskipulagsáætlana eru aðgengilegar á kortavef Garðabæjar og skipulagsvefsjá Skipulagsstofnunar.

Ákvarðanir bæjarstjórnar um deiliskipulagsáætlanir eru stjórnvaldsákvarðanir sem eru kæranlegar til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu auglýsingar um gildistöku deiliskipulagsáætlunar í B-deild Stjórnartíðinda.


Arnarland deiliskipulag, Arnarland - Miðsvæði - breyting á aðalskipulagi og Arnarnesland - Akrar deiliskipulagsbreyting

16.5.2025

Þann 6. mars sl. samþykkti bæjarstjórn Garðabæjar tillögur að skipulagsáætlunum sem tengjast fyrirhugaðri uppbygging á svæði því sem kallast hefur Arnarnesháls en nú Arnarland. 

Samþykkt:

Þann 6. mars sl. samþykkti bæjarstjórn Garðabæjar, í samræmi við skipulagslög 123/2010, tillögur að skipulagsáætlunum sem tengjast fyrirhugaðri uppbyggingu á svæði því sem kallast hefur Arnarnesháls en nú Arnarland. Um er að ræða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030, tillögu að deiliskipulagi Arnarlands og tillögu að breytingu deiliskipulags Akra.

Gildistaka: 
Tillagan Arnarland deiliskipulag hefur öðlast gildi og var auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 16. maí 2025 nr. 513/2025. 

Tillagan Arnarland - Miðsvæði aðalskipulagsbreyting hefur öðlast gildi og var auglýst í B-deild Stjórnartíðinda þann 16. maí 2025 nr. 511/2025. 

Í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarráðs hér með kynnt.

 

Arnarland deiliskipulag: 

 

Arnarland - Miðsvæði - Aðalskipulagsbreyting:

Arnarnesland - Undirgögn - Akrar - Deiliskipulagsbreyting:

Viðbótargögn:

Vakin er athygli á málskotsrétti samkvæmt 52. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og lögum um úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála nr. 130/2011 en þar kemur fram að stjórnvaldsákvarðanir má kæra til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Þeir einir geta kært stjórnvaldsákvarðanir sem eiga lögvarða hagsmuni tengda þeirri ákvörðun sem kæra á. Kærufrestur er einn mánuður frá birtingu skipulagsáætlana í B-deild Stjórnartíðinda.

Í samræmi við 2. mgr. 31. gr. og 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er niðurstaða bæjarstjórnar hér með auglýst.