Bæjarstjórn

Bæjarstjórn Garðabæjar 2022-2026 er skipuð 11 fulltrúum.

Bæjarstjórn fer með stjórn bæjarins samkvæmt ákvæðum sveitarstjórnarlaga. Hún fer með yfirstjórn stofnana og fyrirtækja á vegum bæjarins, að svo miklu leyti sem hún hefur ekki falið hana öðrum. Á meðal annarra verkefna er kosning í ráð og nefndir á vegum bæjarstjórnar, yfirstjórn á fjárreiðum bæjarins, gerð samþykkta og ákvörðun gjalda, eftir því sem lög mæla fyrir um og þörf krefur.

Fundir bæjarstjórnar Garðabæjar eru fyrsta og þriðja fimmtudag hvers mánaðar og hefjast kl. 17.
Fundir bæjarstjórnar eru haldnir í Sveinatungu, fundarsal bæjarstjórnar á Garðatorgi 7. 

Fundir bæjarstjórnar eru öllum opnir.

Fundargerðir bæjarstjórnar eru birtar á vef Garðabæjar daginn eftir fund. 

Upptökur (myndupptökur og eldri hljóðupptökur) af fundum bæjarstjórnar má sjá hér. 

Næsti fundur bæjarstjórnar

Fundurinn verður í beinu streymi af vef Garðabæjar, sjá útsendingu og fundarboð hér.  

Fulltrúar í bæjarstjórn

Forseti bæjarstjórnar 2024-2025 er Margrét Bjarnadóttir (D)
Varaforsetar 2024-2025 eru Gunnar Valur Gíslason (D) (1. varaforseti) og Ingvar Arnarson (G) (2. varaforseti).

Í bæjarstjórn Garðabæjar sitja:


Almar Guðmundsson (D)

Bæjarstjóri og bæjarfulltrúi frá 2014.

Sigríður Hulda Jónsdóttir (D)

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá 2014. 

Björg Fenger (D)

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá 2018.

Gunnar Valur Gíslason (D)

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá 2014

Hrannar Bragi Eyjólfsson (D)

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá 2022

Guðfinnur Sigurvinsson (D)

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá árinu 2022. 

Margrét Bjarnadóttir (D)

Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins frá árinu 2022. Forseti bæjarstjórnar frá árinu 2024.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir (G)

Bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans frá árinu 2022.

Ingvar Arnarson (G)

Bæjarfulltrúi Garðabæjarlistans frá 2018. Í leyfi frá frá 1.sept 2023 – 30. apríl  2024

Brynja Dan Gunnarsdóttir (B)

Bæjarfulltrúi Framsóknar frá árinu 2022.