Auglýsingar (Síða 37)

Fyrirsagnalisti

4. mar. 2015 : Auglýst eftir umsóknum í þróunarsjóð leikskóla

Fræðslu- og menningarsvið Garðabæjar auglýsir eftir umsóknum í þróunarsjóð leikskóla. Þróunarsjóðunum er ætlað að stuðla að framþróun og öflugu innra starfi leikskóla í Garðabæ. Einstaka kennarar, kennarahópar, aðrir fagaðilar sem starfa við leikskóla í Garðabæ, einn skóli eða fleiri skólar/fagaðilar í sameiningu, fræðslu og menningarsvið í samstarfi við skóla geta sótt um styrk í Þróunarsjóð leikskóla Lesa meira

25. feb. 2015 : Rafmagnsleysi í Ásahverfi

Rafmagnslaust er í hluta Garðabæjar vegna bilunar í dreifistöð við Lyngás. Svo virðist sem þetta eigi við um hluta Ásahverfis í Garðabæ. Samkvæmt upplýsingum frá HS Veitum gæti orðið rafmagnslaust fram eftir degi en unnið er að viðgerð. Lesa meira

5. feb. 2015 : Auglýst er eftir umsóknum í Þróunarsjóð grunnskóla

Fræðslu- og menningarsvið Garðabæjar auglýsir í fyrsta sinn eftir umsóknum í Þróunarsjóð grunnskóla í Garðabæ. Þróunarsjóðnum er ætlað að stuðla að framþróun og öflugra innra starfi skóla í Garðabæ. Einstaka kennarar, kennarahópar, aðrir fagaðilar sem starfa við grunnskóla í Garðabæ, einn skóli eða fleiri skólar/fagaðilar í sameiningu, fræðslu- og menningarsvið í samstarfi við skóla, geta sótt um styrk í Þróunarsjóðinn. Lesa meira

4. feb. 2015 : Frístundabíllinn keyrir í vetrarfríinu

Frístundabíll Garðabæjar mun keyra samkvæmt áætlun í næstu viku, 9. - 13. febrúar í vetrarfríi skóla í Garðabæ Lesa meira

27. jan. 2015 : Polla- og pæjukórinn tekur til starfa í Vídalínskirkju

Polla- og pæjukórinn hefur verið stofnaður í Vídalínskirkju fyrir 6-9 ára börn. Æfingar verða í safnaðarheimilinu alla þriðjudaga frá kl 16-17 og stjórnandi kórsins er Heiðar Örn Kristjánsson. Lesa meira

19. jan. 2015 : Kynningar á tillögu að nýju svæðisskipulagi - Höfuðborgarsvæðið 2040

Mánudaginn 19. janúar verður haldinn kynningarfundur um svæðisskipulagið sérstaklega ætlaður Garðbæingum. Fundurinn hefst kl. 17:30 í Flataskóla. Þeir sem vilja kynna sér tillöguna er einnig boðið á opið hús á skrifstofu SSH, Hamraborg 9, Kópavogi á eftirtöldum dögum: Þriðjudaginn 20. janúar kl. 16-18, Miðvikudaginn 21. janúar kl. 11:30 – 13:30, Fimmtudaginn 22. janúar kl. 16 - 18 Lesa meira

13. jan. 2015 : Auglýsing um afreksstyrki ÍTG

Íþrótta og tómstundaráð Garðabæjar auglýsir eftir umsóknum frá íþróttafélögum um afreksstyrki fyrir einstaklinga og hópa skv. afreksstefnu ÍTG grein 3.3 á vef bæjarins, Lesa meira

9. jan. 2015 : Tillaga að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2040

Tillaga að nýju svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins er í auglýsingu til 2.febrúar 2015. Lesa meira

5. jan. 2015 : Aðstaða fyrir sjúkraþjálfara - húsnæði til sýnis

Garðabær auglýsir hér með eftir umsóknum frá áhugasömum aðilum til að koma að nýtingu á nýrri aðstöðu fyrir sjúkraþjálfun á Ísafold, hjúkrunarheimili og þjónustumiðstöð í Garðabæ. Sjúkraþjálfari hjúkrunarheimilisins nýtir aðstöðuna að hluta. Húsnæðið verður til sýnis þriðjudaginn 6. janúar milli kl. 13:00 – 15:00. Lesa meira

30. des. 2014 : Auglýsing um lýsingu aðalskipulagsgerðar

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkti á fundi sínum þann 4. desember 2014 tillögu að lýsingu gerðar Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 í samræmi við 1.mgr. 30.gr. skipulagslaga nr 123/2010. Lesa meira

29. des. 2014 : Jólatré hirt

Hjálparsveit Skáta í Garðabæ sér um að hirða jólatré í öllum hverfum Garðabæjar miðvikudaginn 7. janúar og fimmtudaginn 8. janúar 2015. Lesa meira

18. des. 2014 : Afgreiðslutími þjónustuvers Garðabæjar um jól og áramót

Afgreiðslutími þjónustuvers Garðabæjar um jól og áramót Lesa meira
Síða 37 af 50