Auglýsingar (Síða 38)

Fyrirsagnalisti

18. des. 2014 : Afgreiðslutími í sundlaugar Garðabæjar yfir jól og áramót

Afgreiðslutími í sundlaugar Garðabæjar yfir jól og áramót Lesa meira

16. des. 2014 : Foreldrar sæki börn sín í skólann að loknum skóladegi

Þessi tilmæli áttu við þriðjudaginn 16. desember. Vegna óveðurs sem nú geisar á höfuðborgarsvæðinu hefur verklag um röskum á skólastarfi verið virkjað varðandi skólalok. Foreldrar og forráðamenn eru beðnir um að tryggja að börn sín verði sótt í skólana að loknum skóladegi, þannig að þau séu ekki ein á ferðinni í óveðrinu. Jafnframt hafa skólar verið beðnir um að tryggja að börn yfirgefi ekki skólana nema í fylgd með fullorðinna. ATHUGA - Akstur frístundabíls fellur niður í dag vegna veðurs. Foreldrar bera ábyrgð á að koma börnum sínum til og frá æfingum í þeim tilfellum sem þær falla ekki niður. Lesa meira

12. des. 2014 : Auglýsing um tillögu að nýju svæðisskipulagi - Höfuðborgarsvæðið 2040

Svæðisskipulagsnefnd höfuðborgarsvæðisins auglýsir, skv. 24. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 7. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006, tillögu að nýju svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins - Höfuðborgarsvæðið 2040. Lesa meira

12. des. 2014 : Aðstaða fyrir sjúkraþjálfara og tengda starfsemi

Garðabær auglýsir hér með eftir umsóknum frá áhugasömum aðilum til að koma að nýtingu á nýrri aðstöðu fyrir sjúkraþjálfun á Ísafold, hjúkrunarheimili og þjónustumiðstöð í Garðabæ. Lesa meira

2. des. 2014 : Auglýsing um deiliskipulag í Garðabæ

Bæjarstjórn Garðabæjar auglýsir hér með kynningu á eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum Lesa meira

20. nóv. 2014 : Bjarnastaðir - aðstaða fyrir félög/félagasamtök

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar auglýsir hér með eftir umsóknum félaga/félagasamtaka í Garðabæ um afnot af húsnæði á Bjarnastöðum, Álftanesi fyrir skrifstofur, varðveislu skjala, fundarhöld, viðburði og alls kyns menningar- og náttúrufræðastarf sem húsnæðinu hæfir. Lesa meira

19. nóv. 2014 : Auglýsing um styrki vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks

Auglýsing um styrki vegna námskostnaðar og verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks Lesa meira

13. nóv. 2014 : Jóla- og góðgerðardagur á Álftanesi

Jóla- og góðgerðadagur á Álftanesi verður haldinn 29. nóvember, auglýst er eftir félagasamtökum og einstaklingum sem vilja vera með söluborð Lesa meira

10. nóv. 2014 : Álftanesvegur, breyting á umferð

Umferð hefur nú verið hleypt á endurbyggðan Álftanesveg milli Garðaholts og Garðavegar. Í þessari viku verður unnið við lagfæringar fláa og uppsetningu vegriðs. Einnig er vakin athygli á, að tenging núverandi vegar við þann nýja er bráðabirgðatenging og veglýsing aukin á þeim kafla og hámarkshraði þar 50 km./klst. Lesa meira

4. nóv. 2014 : Tillaga að deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar, forkynning

Í samræmi við 4. mgr. 40. greinar skipulagslaga nr. 123 2010 auglýsir Garðabær hér með forkynningu á tillögu að deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar. Lesa meira

28. okt. 2014 : Truflanir á umferð á Álftanesvegi, nauðsynlegt að fara hjáleið

Frá og með hádegi í gær, mánudaginn 27. október verður unnið að nýjum áfanga á Álftanesvegi og fara þarf hjáleið um Garðaholt og Garðaveg á meðan á þeirri framkvæmd stendur. Vegfarendur eru hvattir til að fara varlega. Lesa meira

16. okt. 2014 : Breyttur skilafrestur á byggingarnefndarteikningum

Breyting hefur verið gerð á afhendingartíma teikninga, sem leggja þarf fyrir bæjarráð. Nú þurfa teikningar sem fara eiga fyrir bæjarráð að berast í síðasta lagi á hádegi á þriðjudegi eða á hádegi viku fyrir fund bæjarráðs. Lesa meira
Síða 38 af 50