Höldum áfram að þróa SKÍNANDI skóla

Hofsstaðaskóli og Garðaskóli (2016)

Fagmennska kennara Íslenska Jafnrétti Lýðræði og mannréttindi Læsi Mat á skólastarfi Stærðfræði

Framhald á verkefninu SKÍN – Innra mat til eflingar faglegs skólastarfs (2015)

Markmið:

SKÍN er samstarfsverkefni kennara og stjórnenda í Garðaskóla og Hofsstaðaskóla í Garðabæ. Markmið verkefnisins eru að efla kennsluhætti og innra mat skólanna. Ætlunin er að auka fagmennsku kennara, þróa innra mat skólans sbr. 10. kafla Aðalnámskrár grunnskóla og hámarka árangur í kennslu. Á seinna ári verkefnisins settu þátttakendur sér tvö yfirmarkmið til að vinna að um veturinn. Annars vegar að setja hæfniviðmið inn í námsáætlanir og kennsluseðla og hins vegar að efla innra mat skólanna.

Lokaskýrsla í pdf-skjali