5. mar. 2021

Hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar lýkur 8. mars

Hugmyndasöfnun í lýðræðisverkefninu Betri Garðabæjar stendur yfir til og með mánudagins 8. mars nk. 

  • Betri Garðabær 2021 - tímalína
    Betri Garðabær - tímalína

Hugmyndasöfnun í lýðræðisverkefninu Betri Garðabæjar stendur yfir til og með mánudagins 8. mars nk.  Enn er því tími til að senda inn góðar hugmyndir að smærri framkvæmdum sem geta haft jákvæð áhrif á nærumhverfið, t.d. til útivistar og samveru og til að efla hreyfi- og leikmöguleika. 

Til að senda inn hugmynd er farið inn á hugmyndasöfnunarvef verkefnisins:HUGMYNDASÖFNUNARVEFUR 2021

Á hugmyndasöfnunarvefnum er hægt að setja inn eina eða fleiri hugmyndir og einnig er hægt að skoða þar hugmyndir annarra, setja inn rök með og móti hugmyndum og líka við áhugaverðar hugmyndir.

Hér má sjá nánari upplýsingar um lýðræðisverkefnið Betri Garðabæ.

Vekið athygli á hugmyndum ykkar á samfélagsmiðlum 

Þegar hugmynd hefur verið sett inn á hugmyndasöfnunarvefinn er hægt að deila henni á samfélagsmiðla og vekja athygli á henni og um leið er hægt að hvetja aðra til að fara inn á hugmyndasöfnunarvefinn og líka við hugmyndina. . Með því að setja inn ljósmyndir eða myndbönd með hugmyndunum er hægt að skýra þær betur út og framsetningin verður skemmtileg. Jafnframt er hægt að staðsetja hugmyndirnar á korti.

Eftir að hugmyndasöfnun lýkur fer matshópur skipaður starfsmönnum bæjarins yfir innsendar hugmyndir og leggur fram ákveðinn fjölda hugmynda á kjörseðil þar sem hugmyndirnar eru kostnaðarmetnar. Horft verður til þess að þær hugmyndir sem fara á kjörseðilinn verði dreift landfræðilega jafnt um sveitarfélagið.

Rafræn kosning í lok maí

Þegar búið er að vinna úr hugmyndunum og kostnaðarmeta fá íbúar í Garðabæ tækifæri til að kjósa um hugmyndirnar og úthluta allt að 100 milljónum króna í verkefni sem þeir vilja sjá framkvæmd í bænum á þessu og næsta ári.

Rafræn kosning er fyrirhuguð 26. maí – 7. júní 2021. Gera má ráð fyrir að um það bil 30 verkefni verði á kjörseðli. Þátttaka í kosningunni er opin öllum þeim íbúum sem hafa skráð lögheimili í Garðabæ þegar kosning fer fram og verða 15 ára og eldri á kosningaárinu. Verkefni sem þarfnast minni undirbúnings fara í framkvæmd sumarið 2021 en stærri verkefnum verður lokið að hausti 2022.