Íbúafundur í Urriðaholti klukkan 19:30
Hvernig líður krökkunum okkar, hvað er að frétta í skólamálum og hvernig standa framkvæmdir í bænum? Þetta og fleira verður í brennidepli á íbúafundi í Urriðaholti í kvöld, 16. október. Fundurinn hefst klukkan 19:30.
Í kvöld mun Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar ásamt sviðsstjórum bjóða áhugasömum íbúum til samtals og sitja fyrir svörum á íbúafundi í Urriðaholti.
Fundurinn er haldinn undir yfirskriftinni „Hvað er að frétta í Garðabæ“ og hafa nú þegar tveir fundir verið haldnir undir sömu yfirskrift í október, einn á Álftanesi og annar í Flataskóla.
Á fundinum í kvöld fá íbúar tækifæri til að fara yfir það sem þeim liggur á hjarta, taka til máls og bera fram fyrirspurnir. Fundurinn er haldinn í Urriðaholtsskóla og hefst klukkan 19:30.
Boðið verður upp á kaffi og léttar veitingar. Öll velkomin og hlökkum til samtalsins.