7. sep. 2006

KB-banki í Garðabæ styrkir þrjú góð verkefni

KB-banki styrki leikskólaverkefni
  • Séð yfir Garðabæ


Elstu og yngstu íbúar Garðabæjar svo og íbúar bæjarins af erlendum uppruna njóta góðs af þremur verkefnum sem KB-banki í Garðabæ ákvað að styrkja í tilefni af 30 ára afmæli útibúsins.

Verkefni elstu barna í leikskóla

Fyrsta verkefnið er þróun námskrár fyrir elstu börnin í leikskólum í Garðabæ. Í leikskólunum hefur, frá árinu 2000, verið unnið með elsta árganginum eftir þróunarverkefni þar sem lögð er á áhersla á markvissa málörvun, stærðfræði og raungreinar. Áhugi er fyrir því að endurskoða þetta verkefni og þróa samkvæmt áherslum hvers leikskóla. Áfram verður áhersla á íslensku og stærðfræði en einnig á hreyfingu og tónlist

Friðarreitur Holtsbúðar

Starfsfólk og velunnarar Holtsbúðar vinna nú að því að breyta og bæta innrigarð sem er í Holtsbúð 87 og gera hann að sannkölluðum Friðarreit fyrir heimilisfólk og aðstandendur þess. Rými verður aukið í garðinum með því að taka burtu stórt beð og helluleggja þar sem beðið var áður. Einnig verður sett upp markísa, hitari og ljós og stólum og borðum komið fyrir.

Bætt upplýsingagjöf og þjónusta við nýbúa

Þriðja verkefnið snýr að því að bæta upplýsingagjöf og þjónustu við íbúa bæjarins af erlendum uppruna. Það verður gert með því að úbúa upplýsingaefni um þjónustu bæjarins, m.a. á vef Garðabæjar, á erlendum tungumálum. Einnig er ætlunin að stuðla að fræðslu um ólíka menningu og siði í því skyni að auka víðsýni og virðingu fyrir menningu og tungu þeirra sem eiga annan uppruna en íslenskan.

Hvert verkefni hlaut 250.000 kr. styrk frá KB-banka og voru þeir afhentir við hátíðlega athöfn 1. september sl.

Árni Gunnarsson, útibússtjóri KB-banka í Garðabæ
afhendir Önnu Magneu Hreinsdóttir leikskólafulltrúa
250 þús. kr. ávísun vegna þróunar á námskrá elstu
barnanna í leikskóla.

Gunnar Einarsson bæjarstjóri veitir móttöku 250 þús.
kr. styrk til að efla upplýsingagjöf og þjónustu við
íbúa af erlendum uppruna.