11. jan. 2002

Garðbæingum óskað til hamingju með fjölskyldustefnuna

Garðbæingum óskað til hamingju með fjölskyldustefnuna
  • Séð yfir Garðabæ
Fjölskylduráð, skipað af félagsmálaráðherra, hefur sent bæjarstjórn og íbúum Garðabæjar hamingjuóskir með að hafa verið fyrst íslenskra sveitarfélaga til að samþykkja stefnu í málefnum fjölskyldunnar. Fjölskyldustefna Garðabæjar var samþykkt á fundi bæjarstjórnar 20. desember 2001. Ýmsir þættir í starfi sveitarfélaga hafa bein eða óbein áhrif á líf fjölskyldna í sveitarfélaginu. Í inngangi að fjölskyldustefnu Garðabæjar segir að fjölskyldan gegni lykilhlutverki í þorskaferli einstaklingsins og að mikilvægt sé að samfélagið hlúi vel að fjölskyldunni og skapi henni þroskavænleg skilyrði. Þar segir einnig "Í Garðabæ er lögð áhersla á að skapa einstaklingnum bestu möguleg skilyrði svo hann geti vaxið, þroskast og notið hæfileika sinna sjálfum sér og öðrum til góðs og samfélaginu til framfara." Meginmarkmið fjölskyldustefnu Garðabæjar er að skapa heildstæða umgjörð utan um fjölskylduna. Lögð er áhersla á að fjölskyldum séu sköpuð góð skilyrði á öllum æviskeiðum. Meðal þeirra leiða sem settar eru fram til þess að þetta meginmarkmið geti náðst eru að stofnanir bæjarins starfi í samvinnu við fjölskylduna og taki mið af ábyrgð foreldra á börnum sínum. Að samþætting og samfella verði eins góð og mögulegt er á milli skóla, félagsstarfs, heilbrigðismála og íþrótta- og tómstundamála. Að leggja áherslu á fjölskylduráðgjöf og bjóða upp á fræðslunámskeið sem er ætlað að efla skilning á eðli og hlutverki fjölskyldunnar á mismunandi æviskeiðum og að gera öldruðum kleift að búa við fullt sjálfræði eins lengi og unnt er. Málaflokkarnir sem fjallað er um í stefnunni eru: Dagforeldrar, leikskólar, grunnskóli, málefni aldraðra, forvarnir og fræðsla, íþróttir, tómstundir og félagsstarf, menning, umhverfi og útivist, skipulag, atvinna og húsnæði, starfsfólk Garðabæjar jafnréttismál. Stýrihópur sem vann að mótun fjölskyldustefnunnar hafði samráð við fjölmarga aðila innan bæjarins við mótun stefnunnar, t.d. nefndir bæjarins, foreldrafélög, sóknarnefnd, félagasamtök og fjölskyldur í bænum. Margar góðar ábendingar og tillögur bárust frá þessum aðilum sem setja mark sitt á fjölskyldustefnuna. Fjölskyldustefnan verður gefin út á næstu vikum og dreift í hús í Garðabæ. Þeir sem vilja kynna sér stefnuna áður geta smellt á tengilinn Fjölskyldustefna Garðabæjar undir flokknum ýmislegt á forsíðu vefjarins (athugið að smella á cancel þegar beðið er um aðgangsorð). Félagsmálaráðherra skipaði Fjölskylduráð árið 1998 í kjölfar samþykktar þingsályktunar um mótun opinberrar fjölskyldustefnu og aðgerðir til að styrkja stöðu fjölskyldunnar. Í þingsályktuninni segir m.a. "Ríkisstjórn og sveitarstjórnum á hverjum tíma ber að marka sér opinbera stefnu í málefnum fjölskyldunnar í því skyni að styrkja hana og vernda án tillits til gerðar hennar og búsetu." Bréf Fjölskylduráðs má skoða með því að smella á tengilinn hér efst á síðunni.