22. sep. 2000

Nýtt íþróttahús við Skólabraut

Nýtt íþróttahús við Skólabraut
  • Séð yfir Garðabæ
Bæjarstjórn hefur samþykkt að skipa fimm manna undirbúningsnefnd til að vinna með hönnuðum nýbyggingar íþróttahúss við Skólabraut. Nefndin verður skipuð einum fulltrúa tilnefndum af stjórn UMF Stjörnunnar, bæjarverkfræðingi og þremur fulltrúum kosnum af bæjarstjórn.