7. maí 2021

Vorhreinsun lóða 10.-21. maí

Eins og síðustu ár eru Garðbæingar hvattir til að hreinsa lóðir sínar í sameiginlegu átaki dagana 10-21. maí. Starfsmenn bæjarins og verktakar verða á ferðinni þessa daga og hirða garðúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk.

Eins og síðustu ár eru Garðbæingar hvattir til að hreinsa lóðir sínar í sameiginlegu átaki dagana 10-21. maí. Starfsmenn bæjarins og verktakar verða á ferðinni þessa daga og hirða garðúrgang sem settur hefur verið út fyrir lóðamörk. Farið verður á milli allra hverfa bæjarins og nánari upplýsingar um hvenær verður hirt úr hvaða hverfum má sjá hér í töflu fyrir neðan. Götusópun hefst í íbúðahverfum þegar vorhreinsunin stendur yfir í maí en byrjað var að sópa aðalgötur bæjarins í apríl.

Athugið: Íbúar eru beðnir um að fylla ekki pokana með garðúrgangingum þannig að þeir verði of þungir þar sem þeir eru fjarlægðir af lóðamörkum með handafli og settir í bíla.

Hreinsun á garðúrgangi: (ATH. Uppgefnar dagsetningar á hirðingu í hverfum eru til viðmiðunar)

10.-12. maí 2021 Flatir, Ásgarður, Fitjar, Hólar, Ásar, Grundir, Sjáland, Arnarnes, Akrar, Vífilsstaðir, Urriðaholt
13.-17. maí 2021 Tún, Mýrar, Garðatorg, Móar, Byggðir, Lundir, Búðir, Bæjargil, Hæðahverfi, Hnoðraholt
18.-21. maí 2021 Álftanes, Garðahverfi, Prýði, Hleinar og v. Álftanesveg