17. jún. 2003

Erling Jóhannesson og Hallfríður Ólafsdóttir eru bæjarlistamenn Garðabæjar árið 2003

Erling Jóhannesson og Hallfríður Ólafsdóttir eru bæjarlistamenn Garðabæjar árið 2003
  • Séð yfir Garðabæ

 

Erling Jóhannesson, leikari og leikstjóri, og Hallfríður Ólafsdóttir, flautu- og pikkolóleikari, eru bæjarlistamenn Garðabæjar árið 2003.  Ásdís Halla Bragadóttir bæjarstjóri afhenti þeim Erling og Hallfríði starfsstyrk listamanna árið 2003 við hátíðarmessu í Vídalínskirkju í dag, 17. júní.

Erling Jóhannesson er einn af stofnendum Hafnarfjarðarleikhússins þar sem hann hefur starfað sem einn af listrænum stjórnendum leikhússins, sem leikari, handritshöfundur, leikmyndahönnuður og leikstjóri. Hallfríður Ólafsdóttir hefur verið fastráðin hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 1997 sem flautu- og pikkolóleikari. Frá árinu 1999 hefur Hallfríður verið fyrsti flautuleikari Sinfóníuhljómsveitarinnar.

Á myndinni má sjá bæjarlistamenn Garðabæjar árið 2003, Erling Jóhannesson og Hallfríði Ólafsdóttur ásamt Ásdísi Höllu Bragadóttur bæjarstjóra. Tryggvi Pétur og Gunnhildur Halla aðstoðuðu mömmu sína (Hallfríði) við að taka á móti viðurkenningarskjalinu.  

Erling Jóhannesson lauk námi frá Leiklistarskóla Íslands árið 1990 og hefur starfað sem leikari, leikstjóri og leiklistarkennari að lokinni útskrift. Meðal annars starfaði Erling við Þjóðleikhúsið, útvarp og sjónvarp auk þess sem hann stofnaði ásamt fleirum leikhópinn Kaþarsis sem setti upp nokkrar sýningar á árunum 1990-1992. Erling hefur einnig kennt leiklist við ýmsa framhaldsskóla s.s. Menntaskólann í Reykjavík og Fjölbrautaskólann í Garðabæ.  Fyrstu leikstjórnarverkefni Erlings voru aðallega götusýningar með ungu fólki og stærsta verkefnið á því sviði var þjóðhátíðarsýning á vegum ÍTR árið 1993.

Árið 1994 stofnaði Erling ásamt félögum sínum Hafnarfjarðarleikhúsið Hermóð og Háðvör. Hafnarfjarðarleikhúsið fékk menningarverðlaun DV fyrir Birting eftir Voltaire í leikgerð Erlings árið 1997. Önnur verkefni Hafnarfjarðarleikhússins sem Erling hefur tekið þátt í eru m.a. Að eilífu eftir Árna Ibsen, Vitleysingarnir eftir Ólaf Hauk Símonarson, Platonof eftir Tsjekhov í samvinnu við Nemendaleikhúsið, Englabörn eftir Hávar Sigurjónsson, Rauðhetta eftir Charlotta Böving þar sem Erling gerði leikmyndina. Í fyrra lék Erling í Grettissögu og segir í dóm Morgunblaðsins um verkið : ,, Erling Jóhannesson lék fjöldamörg hlutverk, t.d. Atla, bróður Grettis, Þorfinn í Háramarsey og Þorbjörn öngul. Erling tók sig mjög vel út á sviðinu í hlutverkum hinna ýmsu kappa, fór einstaklega vel með textann og lék af einbeitni og krafti.”
Í vor frumsýndi Hafnarfjarðarleikhúsið nýtt íslenskt barnaleikrit, Gaggalagú eftir Ólaf Hauk Símonarson, í leikstjórn Erlings. Leikritið hefur þegar vakið verðskuldaða athygli og leikhúsgestir ungir sem aldnir hafa gaman af. Í Hafnarfjarðarleikhúsinu hafa leikarar jafnframt verið listrænir stjórnendur og áhersla hefur verið lögð á alls konar frumsköpun. Erling hefur helgað leikhúsinu krafta sína undanfarin ár og stefnir að frekari uppbyggingu Hafnarfjarðarleikhússins í framtíðinni.

Erling hefur einnig getið sér gott orð sem gullsmiður og útskrifaðist úr gullsmíði frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1983. Erling stundaði nám í gullsmíði og skartgripahönnun á Ítalíu að loknu námi í Iðnskólanum.. Á árunum 1997-1999 vann Erling hjá Georg Jensen í Danmörku. Auk þess hefur Erling tekið þátt í fjölda skartgripa- og hönnunarsýninga bæði hér heima sem og á Norðurlöndunum.

 

Hallfríður Ólafsdóttir stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík hjá Bernharði Wilkinson og lauk einleikaraprófi vorið 1988. Sama ár fór Hallfríður utan til náms hjá Trevor Wye í Royal Northern College of Music í Manchester og lauk þaðan Postgraduate Diploma árið 1989. Að því loknu stundaði Hallfríður nám við Royal Academy of Music í Lundúnum hjá kennurunum William Bennet, Sebastian Bell og Michie Bennett. Eftir tveggja ára nám hlaut Hallfríður Diploma of Advanced Studies. Veturinn 1991-1992 stundaði Hallfríður einkanám hjá Alain Marion í París. Hallfríður hefur tekið þátt í fjölda ,,Master-class” námskeiða og hefur einnig haldið slík námskeið í mörgum tónlistarskólum hér heima.

Frá árinu 1992 hefur Hallfríður starfað sem tónlistarmaður og kennari. Hallfríður leikur í kammerhljómsveitinni Camerarctica sem hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir flutning á verkum eftir Mozart. Camerarctica hefur leikið inn á hljómdisk kammerverk Mozarts, Camerarctica leikur Mozart (gefin út árið 1996).  Hallfríður hefur leikið með fjöldamörgum hljómsveitum s.s. Hljómsveit íslenska dansflokksins, Hljómsveit íslensku óperunnar, Kammersveit Reykjavíkur, Kammersveit Seltjarnarness, RAM Chamber Orchestra, RAM Symphony Orchestra, Thames Sinfonia, Westminster Chamber Orchestra o.fl. hljómsveitir.

Í vor lék Hallfríður Ólafsdóttir einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Í gagnrýni DV um tónleikana segir m.a. um flautukonsertinn eftir Rautavaara: ,, Hallfríður Ólafsdóttir lék konsertinn glæsilega. Mýktin í tóni hennar hefur aukist undanfarið og túlkunin var yfirveguð og örugg allan tímann.”

Hallfríður hefur hlotið fjöldamörg verðlaun fyrir tónlistarflutning sinn. Árið 2001 var Hallfríði veitt heiðursnafnbótin Honorary Associate of the Royal Academy of Music (HonARAM) sem veitist þeim fyrrum nemendum RAM sem notið hafa velgengni í starfi.


Bæjarstjórn Garðabæjar veitir árlega starfsstyrk til listamanns eða listamanna að fenginni tillögu menningar- og safnanefndar Garðabæjar.

 

 Inga Rúna Grétarsdóttir nýstúdent frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ flutti ávarp í Vídalínskirkju á þjóðhátíðardaginn.

 Kvennakór Garðabæjar söng við athöfnina undir stjórn Ingibjargar Guðjónsdóttur.