29. mar. 2019

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Nemendur úr sjöunda bekk í Garðabæ og Seltjarnarnesi tóku þátt í lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar. 

  • Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar
    Frá vinstri: Agnes Sólbjört Helgadóttir, Inga Fanney Jóhannesdóttir og Bjarki Óttarsson

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar var haldin í Kirkjuhvoli, safnaðarheimili Vídalínskirkju, miðvikudaginn 27. mars sl. Nemendur úr sjöunda bekk í Garðabæ og Seltjarnarnesi tóku þátt í lokahátíðinni. Garðabær og Seltjarnarnes hafa undanfarin ár verið í samstarfi um lokahátíðina og skiptast á að halda lokahátíðina.

Á lokahátíðinni fengu 11 nemendur í sjöunda bekk úr Alþjóðaskólanum, Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla og Valhúsaskóla (grunnskóli Seltjarnarness) að spreyta sig á upplestri á fyrirfram ákveðnum texta úr skáldsögum og ljóðum. Í ár voru skáld keppninnar Ævar Þór Benediktsson og Anna Sigrún Snorradóttir. Einnig fengu nemendur að lesa ljóð að eigin vali. Á meðan á hátíðinni stóð var einnig boðið upp skemmtiatriði frá skólunum og í ár voru það einstaklega flott tónlistaratriði þar sem spilað var á þverflautu, píanó og fiðlu. 

Viðurkenningar

Í lok hátíðar afhenti Eiríkur Björn Björgvinsson, forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar,  öllum lesurunum bók frá Félagi íslenskra bókaútgefenda sem viðurkenningu fyrir þátttökuna. Varamenn sem tóku fullan þátt í undirbúningnum voru einnig kallaðir upp á svið og fengu bókaverðlaun. Dómnefnd sem var að störfum fékk það erfiða val að velja þrjá lesara úr hópnum og veita þeim viðurkennningar og verðlaun fyrir 1.-3. sæti.
Í fyrsta sæti í ár var Inga Fanney Jóhannesdóttir úr Sjálandsskóla, í öðru sæti var Agnes Sólbjört Helgadóttir úr Valhúsaskóla og í þriðja sæti var Bjarki Óttarsson úr Hofsstaðaskóla. 

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnarLokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar

Um Stóru upplestrarkeppnina

Garðabær hefur tekið þátt í keppninni nánast frá upphafi eða í 22 ár en Álftanesskóli hefur verið með frá byrjun eða í 23 ár. Lokahátíðir Stóru upplestrarkeppninnar eru haldnar um land allt í mars mánuði en undirbúningur hefst formlega á degi íslenskrar tungu þann 16. nóvember ár hvert og nemendur læra að leggja rækt við góðan upplestur. Hátíðarhlutinn er það sem kalla mætti hina eiginlegu „keppni“. Haldin er upplestrarhátíð í hverjum skóla í lok febrúar eða byrjun mars þar sem tveir nemendur eru valdir til áframhaldandi þátttöku í keppninni fyrir hönd skólans. Stóru upplestrarkeppninni lauk svo formlega með lokahátíðinni sem að þessu sinni var haldin í Garðabæ.