Enginn kynbundinn launamunur hjá Garðabæ
Engin kynbundur munur mælist á heildar- eða dagvinnulaunum karla og kvenna hjá Garðabæ, þegar tekið hefur verið tillit til áhrifa starfs, aldurs, vinnutíma og menntunar. Þetta er niðurstaða könnunar á launum karla og kvenna hjá bæjarfélaginu sem unnin var af Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands.
Karlar hafa hærri heildarlaun
Rannsóknin leiddi í ljós að karlar sem starfa hjá Garðabæ hafa að meðaltali hærri heildarlaun en konur. Meðal fólks í fullu starfi er þessi munur að jafnaði 25% en þegar allir starfsmenn eru skoðaðir eru heildarlaun karla á hverja vinnustund að meðaltali 19% hærri en kvenna.
Helsta skýringin á hærri heildarlaunum karla en kvenna er kynjamunur á öðrum greiðslum en dagvinnulaunum. Hærra hlutfall karla en kvenna fær greiðslur vegna fastrar yfirvinnu og einnig fá hlutfallslega fleiri karlar en konur laun vegna vaktaálags og bakvakta. Svipað hlutfall karla og kvenna fær greidda breytilega yfirvinnu en karlar fá greitt fyrir mun fleiri yfirvinnustundir en konur. Þegar þessir þættir eru teknir með í reikninginn, þ.e. að karlar sinna frekar en konur vaktavinnu og bakvöktum og vinna fleiri yfirvinnustundir minnkar kynbundinn launamunur á heildarlaunum fólks í fullu starfi niður í 5% að meðaltali.
Munurinn hverfur þegar menntun er tekin með
Ekki er mikill munur á menntun karla og kvenna hjá Garðabæ. Svipað hlutfall kynja er með háskólamenntun en hærra hlutfall karla en kvenna er með framhaldsskólamenntun. Þegar búið er að taka tillit til menntunar auk starfsstéttar og vinnutíma er launamunurinn horfinn.
Náði til allra starfsmanna
Rannsóknin náði til 449 starfsmanna Garðabæjar, sem eru nánast allir starfsmenn sem voru í reglubundnu starfi og fengu laun 1. febrúar 2004. Konur voru í miklum meirihluta eða 360 en karlar 89. Um 43% starfsmanna voru í hlutastarfi, um 19% karla en rétt tæplega helmingur kvenna.