24. apr. 2020

Breyttar reglur um takmarkanir á samkomum frá 4. maí

Fjöldamörk samkomubanns hækka úr 20 í 50 manns 4. maí nk.  Frá sama tíma falla alveg niður takmarkanir á fjölda nemenda í leik- og grunnskólum og einnig fjöldatakmarkanir við íþróttaiðkun og æskulýðsstarf barna á leik- og grunnskólaaldri. 

  • Bæjarstjórn í beinni
    Fundur bæjarstjórnar Garðabæjar 15. apríl kl. 17 er í beinni útsendingu hér á vef Garðabæjar.

Frétt á vef stjórnarráðsins um breytingar á takmörkunum á samkomum frá og með 4. maí nk. 
English - Restrictions to be gradually lifted from 4th of May. 

Fjöldamörk samkomubanns hækka úr 20 í 50 manns 4. maí næstkomandi, unnt verður að opna framhalds- og háskóla og ýmsir þjónustuveitendur geta á ný tekið á móti viðskiptavinum. Frá sama tíma falla alveg niður takmarkanir á fjölda nemenda í leik- og grunnskólum og einnig fjöldatakmarkanir við íþróttaiðkun og æskulýðsstarf barna á leik- og grunnskólaaldri. Þetta er meðal þess sem leiðir af nýrri auglýsingu heilbrigðisráðherra um takmörkun á samkomum vegna farsóttar. Rýmkun á reglum um takmarkanir á skólahaldi og samkomum er í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis.

Í auglýsingunni felst að reglur um fjöldatakmörk og um tveggja metra nálægðarmörk munu frá gildistöku hennar ekki eiga við um nemendur í starfsemi leik- og grunnskóla. Þannig verður því unnt að halda óskertri kennslu og vistun barna. Sama á við varðandi börnin í starfsemi dagforeldra, frístundaheimila, félagsmiðstöðva og annarri lögbundinni þjónustu á leik- og grunnskólastigi. Sundlaugar og líkamsræktarstöðvar verða áfram lokaðar almenningi en skólasundkennsla verður heimil.

Á vef stjórnarráðsins er hægt að sjá minnisblöð sóttvarnalæknis þar sem er gott yfirlit yfir helstu breytingar sem auglýsingin hefur í för með sér varðandi skólastarf á öllum skólastigum, á íþróttastarf barna og fullorðinna o.fl.

Sóttvarnalæknir leggur til við heilbrigðisráðherra að þegar líður að lokum maí verði skoðaðir möguleikar á að aflétta enn frekar takmörkunum á samkomum. Að því gefnu að ekkert standi slíkum breytingum fyrir þrifum verði stefnt að því að færa fjöldatakmarkanir úr 50 í 100 manns, opna sundlaugar og líkamsræktarstöðvar o.fl.