31. maí 2019

Fuglaskoðun á Álftanesi

Þriðjudaginn 21. maí sl. fengu nemendur í fimmta bekk Álftanesskóla fræðslu um fugla í vettvangsferð undir leiðsögn fuglafræðinganna Jóhanns Óla Hilmarssonar og dr. Ólafs Einarssonar náttúrufræðings. 

  • Fuglaskoðun nemenda við Kasthúsatjörn
    Fuglaskoðun nemenda við Kasthúsatjörn
  • Séð yfir Kasthúsatjörn og votlendi
    Séð yfir Kasthúsatjörn og votlendi
  • Fuglaskoðun við Kasthúsatjörn
    Fuglaskoðun við Kasthúsatjörn
  • Fuglaskoðun við Kasthúsatjörn
    Fuglaskoðun við Kasthúsatjörn

Þriðjudaginn 21. maí sl. fengu nemendur í fimmta bekk Álftanesskóla fræðslu um fugla í vettvangsferð undir leiðsögn fuglafræðinganna Jóhanns Óla Hilmarssonar og dr. Ólafs Einarssonar náttúrufræðings. Nemendurnir gengu um Álftanesið að Kasthúsatjörn þar sem þeir skoðuðu og greindu fugla með aðstoð fuglafræðinganna. Börnin skoðuðu fugla í gegnum sjónauka eins og t.d. margæsir sem hafa viðkomu á túnum Álftaness á vorin. Eftir vettvangsfræðsluna var farið yfir fuglalista dagsins og verkefni unnin í kennslustofu.

Séð yfir Kasthúsatjörn og votlendi

Fuglaskoðun fyrir almenning

Síðdegis sama dag var boðið upp á fuglaskoðun fyrir almenning við Kasthúsatjörn undir leiðsögn fuglafræðinganna Jóhanns Óla og Ólafs. Fuglaskoðunin fór fram í góðu veðri og allir voru velkomnir. Viðstöddum bauðst að skoða fugla í gegnum sjónauka ásamt því að skoða fuglabækur sem fuglafræðingarnir höfðu meðferðis. Fuglalífið er mjög fjölbreytt við Kasthúsatjörn og nýleg endurheimt votlendi þar nálægt. Við Kasthúsatjörn sáust tegundir eins og brandönd, kría, stokkönd, tildra, skeiðandarsteggur og fleiri fuglategundir. Endurheimta votlendið hefur mikið aðdráttarafl fyrir fugla og mátti þar sjá t.d. sjá grágæs, rauðhöfðaönd, toppönd, gargönd, sandlóur, hrossagauk, jaðrakan, tjald og fleiri tegundir.

Fræðslan og fuglaskoðunin er hluti af sögugöngum ársins sem er samstarfsverkefni umhverfisnefndar, menningar- og safnanefndar og Bókasafns Garðabæjar.

 Fuglaskoðun við Kasthúsatjörn

Fuglaskoðun við Kasthúsatjörn