7. feb. 2013

Söfn í Garðabæ bjóða í heimsókn

Föstudagskvöldið 8. febrúar nk. verður haldin Safnanótt á höfuðborgarsvæðinu. Í Garðabæ verður boðið upp á dagskrá í Hönnunarsafni Íslands, Króki á Garðaholti, Bókasafni Garðabæjar bæði á Garðatorgi og í útibúinu á Álftanesi þar sem verður opið hús frá kl. 19-24. Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð og fjórða árið í röð taka nú fjölmörg söfn af öllu höfuðborgarsvæðinu þátt.
  • Séð yfir Garðabæ

Föstudagskvöldið 8. febrúar nk. verður haldin Safnanótt á höfuðborgarsvæðinu.  Í Garðabæ verður boðið upp á dagskrá í Hönnunarsafni Íslands, Króki á Garðaholti, Bókasafni Garðabæjar bæði á Garðatorgi og í útibúinu á Álftanesi - á öllum stöðunum verður opið hús frá kl. 19-24.  En jafnframt verður opið hús á Bessastöðum frá kl. 16-20.  Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð og fjórða árið í röð taka nú fjölmörg söfn af öllu höfuðborgarsvæðinu þátt. 

Heimboð á Bessastaði frá kl. 16-20

Formleg dagskrá Safnanætur stendur yfir frá kl. 19 um kvöldið til miðnættis og ókeypis aðgangur er í öll söfn á Safnanótt.   Í Garðabæ er þó hægt að taka forskot á sæluna og heimsækja Bessastaði frá kl. 16-20.  Þar verður boðið upp á leiðsögn um elstu staðarhúsin á Bessastöðum en Bessastaðastofa og kirkjan voru reist á 18. öld. Unnt verður að skoða muni og mannvirki sem fundust við fornleifarannsókn,  gjafir til forseta á lýðveldistíma og fyrsta forsetabíl lýðveldisins.

Leikspuni nema af leiklistarbraut FG og ,,Breimleikar á bókasafninu“

Í fyrra voru nemendur af leiklistarbraut FG með vel heppnaðan leikspuna í Bókasafninu og í Króki á Safnanótt.  Nemendur af leiklistarbrautinni mæta nú aftur til leiks á Safnanótt og verða með leikspuna fyrir alla aldurshópa kl. 19:30 í Bókasafni Garðabæjar á Garðatorgi.   Í bókasafninu á Garðatorgi verður einnig hægt að hlýða á áhugaverðan fyrirlestur um ,,Skapandi bókverk“ með Sigurborgu Stefánsdóttur myndlistarkonu og forsprakka ,,Arkanna“.  Fyrirlesturinn hefst kl. 20:45 og stendur í um hálftíma en jafnframt verður hægt að skoða sýnishorn af verkum ,,Arkanna“.   Um klukkustund síðar eða kl. 21:45 mætir hinn skemmtilegi Svavar Knútur söngvari, gítarleikari og tónskáld og heldur stutta tónleika sem bera yfirskriftina ,, Breimleikar á bókasafninu“. 

Menning á Álftanesi fyrr og nú

Í útibúi Bókasafns Garðabæjar sem er staðsett í Álftanesskóla (aðkoma við Eyvindarstaðaveg) verður boðið upp á söng og fyrirlestur.  Um kl. 19:30 ætla ungar og og efnilegar stúlkur úr Álftanesskóla sem skipa sönghópinn ,,Sönglist” að taka nokkur lög undir stjórn Guðrúnar Árnýjar Karlsdóttur.  Klukkan 20:30 flytur Anna Ólafsdóttir Björnsson tölvunar- og sagnfræðingur erindi sem ber heitið ,,Menning á Álftanesi – fyrr og nú“.   Safnið verður einnig opið fyrir gesti og gangandi frá kl. 19-24.

Innlit í Glit
Hönnunarsafn Íslands opnar sýninguna Innlit í Glit kl. 20 í húsakynnum safnsins á Garðatorgi 1.  Leirbrennslan Glit var stofnuð af Einari Elíassyni, Ragnari Kjartanssyni, og Pétri Sæmundsen árið 1958.  Í sýningarrýminu verður hægt að fylgjast með Önnu S. Hróðmarsdóttur leirlistamanni renna leir og gestum verður einnig boðið að móta smámuni úr leir og skilja eftir á ,,Verkstæðinu“. 

Burstabærinn Krókur opinn frá kl. 19-24
Krókur á Garðaholti er lítill bárujárnsklæddur burstabær sem var endurbyggður úr torfbæ árið 1923. Bærinn er gott dæmi um húsakost og lifnaðarhætti alþýðufólks á þessum landshluta á fyrri hluta 20. aldar.  Krókur er staðsettur stutt frá samkomuhúsinu á Garðaholti þar sem hægt er að leggja bílum við gatnamót Garðavegar og Garðaholtsvegar.

Hér í dagbókinni á vefsíðu Garðabæjar er hægt að sjá dagskrána hjá söfnunum í Garðabæ og á heimasíðu Vetrarhátíðar, www.vetrarhatid.is., er hægt að sjá dagskrána í heild sinni.