Skipulag Arnarlands samþykkt
Skipulag Arnarlands var lagt fyrir bæjarstjórn Garðabæjar til lokaafgreiðslu í dag þar sem það var samþykkt. Uppbygging svæðisins mun hefjast í áföngum, með sérstakri áherslu á innviði og umferðarmál.
Bæjarstjórn Garðabæjar hefur tekið ákvörðun um nýtt skipulag Arnarlands. Skipulag fyrir hverfið var lagt fyrir bæjarstjórn til lokaafgreiðslu í dag, fimmtudaginn 6. mars, þar sem það var samþykkt. Markmiðið með nýju deiliskipulagi Arnarlands er að skapa líflegt hverfi með íbúðum, þjónustu og atvinnustarfsemi.
Búast má við að hverfið verði fjölbreytt en gert er ráð fyrir um 450 íbúðum, nærþjónustu og starfsemi heilsuklasa þar sem áhersla er á fyrirtæki tengd heilsu og hátækni. Áhersla er lögð á græn svæði og
góðar og fjölbreyttar samgöngur og t.a.m. er gert ráð fyrir sjálfstætt starfandi leikskóla í Arnarlandi.
Hvað er Arnarland og hverjar eru helstu breytingarnar?
Arnarland, sem stundum er kallað Arnarnesháls, er 8,9 hektara svæði við Hafnarfjarðarveg, Fífuhvammsveg og Arnarnesveg. Skipulag Arnarlands hefur verið lengi í vinnslu og í gegnum árin hafa verið lagðar fram mismunandi tillögur að þróun svæðisins.Upphaflega var gert ráð fyrir að svæðið yrði að mestu nýtt fyrir atvinnustarfsemi og verslun, en með nýju skipulagi sem nú er kynnt er byggð blandað betur saman þannig að þar verði bæði íbúðir og þjónusta.
Þess má geta að það er í fyrsta skipti sem deiliskipulagstillaga fyrir þetta svæði hefur verið auglýst með formlegum hætti og sett í skipulagsferli. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að íbúar hafi haft mikil áhrif á þróun skipulagsins, enda hefur það tekið miklum breytingum frá fyrstu tillögum.
Skipulag hverfisins hefur tekið miklum breytingum í kjölfar samráðs við íbúa og hagaðila. Skipulagsferlið hófst sumarið 2023 og hefur verið bæði langt og ítarleg.
Áhersla hefur verið lögð á að:
- Minnka byggingarmagn og þéttleika byggðarinnar. Fjöldi íbúða fækkar úr 529 í 451.
- Lækka hámarkshæð bygginga. Í stað einnar níu hæða byggingar heilsuklasans verður hún allt að sjö hæðir. Annars staðar verða byggingar 2–6 hæðir.
- Minnka umfang heilsuklasa við Hafnarfjarðarveg. Þessi byggð verður nú 34% minni en upphaflega var gert ráð fyrir.
- Bæta við grænum svæðum og leikskóla. Skipulagið gerir nú ráð fyrir stærra miðlægu grænu svæði og leikskóla sem eykur fjölbreytni í þjónustu innan hverfisins.
- Draga úr skuggavarpi og bæta ásýnd. Skuggavarpsgreiningar hafa verið unnar og byggingarreitir færðir fjær Hafnarfjarðarvegi til að draga úr áhrifum á nærliggjandi byggð.
Í nýju deiliskipulagi er gert ráð fyrir stærra miðlægu grænu svæði og leikskóla sem eykur fjölbreytni í þjónustu innan hverfisins. Þá hafa skuggavarpsgreiningar verið unnar og byggingarreitir færðir fjær Hafnarfjarðarvegi til að draga úr áhrifum á nærliggjandi byggð.
Framtíðarsýn um samgöngur
Skipulagsnefnd hefur tekið undir áhyggjur íbúa af umferðamálum við Arnarland, en þær hafa mikið snúist um aukna umferð og álag á nærliggjandi götur. Því hefur verið leitað leiða til að bæta umferðarskipulag svæðisins.
Þar má nefna að:
- Undirgöng undir Arnarnesveg munu færast austar en upphaflega var gert ráð fyrir, til að bæta flæði gangandi og akandi umferðar.
- Fyrir liggja tillögur að úrbótum við hringtorgið á mörkum Arnarnesvegar, Bæjarbrautar og Fífuhvammsvegar (einnig þekkt sem hringtorgið við Krónuna) sem áætlað er að ráðast í á þessu ári. Aðkoma að verslun Krónunnar verður einnig lagfærð.
- Samráð við Kópavog um umferðarlausnir. Garðabær og Kópavogur hafa undirritað viljayfirlýsingu um endurskoðun sveitarfélagamarka og umferðarbætandi aðgerðir, sem miða að því að létta á umferð í báðum sveitarfélögum.
- Í nýrri skipulagstillögu hefur verið leitast við að tryggja næg bílastæði fyrir íbúa, viðskiptavini og gesti Arnarlands.
- 1 bílastæði er á hverja íbúð undir 100 m² og 1,5 bílastæði á hverja stærri íbúð.
- Í húsum ofarlega í byggðinni er heimilt að gera ráð fyrir 2 bílastæðum á íbúð stærri en 120 m².
- Lóð undir sérstaka bílageymslu sem getur orðið allt að 7.000 m² og þjónustað bæði íbúðir og atvinnuhúsnæði. Húsið er byggt með það í huga að notkun þess geti tekið breytingum þegar til lengri framtíðar er litið
Hver verða áhrifin á nærliggjandi íbúðabyggð?
Skipulagsnefnd hefur sérstaklega tekið til greina áhyggjur íbúa í nærliggjandi hverfum, eins og í Akrahverfi og við Súlunes. Í kjölfarið hafa verið gerðar breytingar á upphaflegum tillögum:
- Hæstu byggingar færðar fjær Hafnarfjarðarvegi. Þær byggingar sem verða 6 eða 7 hæðir munu ekki standa nær lóðarmörkum en 12 metrar.
- Lagt til að bæta hljóðvarnir við Akrahverfi. Hljóðvarnir verða settar meðfram fjölbýlishúsunum við Akrabraut til að draga úr hávaða og ljósmengun frá umferð.
- Grænt svæði í miðju byggðarinnar verður stækkað. Með þessu fæst meira opið rými og minna byggingarmagn en upphaflega var gert ráð fyrir.