4. maí 2023

Útivistartími barna og unglinga frá 1. maí

Frá og með 1. maí mega 12 ára og yngri vera úti til klukkan 22 á kvöldin. Unglingar á aldrinum 13 til 16 ára mega vera úti til klukkan 24. Börn mega ekki vera á almannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum.

Frá og með 1. maí mega 12 ára og yngri vera úti til klukkan 22 á kvöldin. Unglingar á aldrinum 13 til 16 ára mega vera úti til klukkan 24. Börn mega ekki vera á almannafæri utan fyrrgreinds tíma nema í fylgd með fullorðnum. Bregða má út af reglunum fyrir síðartalda hópinn þegar unglingar eru á heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Aldur miðast við fæðingarár. Foreldrum er að sjálfsögðu heimilt að stytta þennan tíma og setja börnunum sínum reglur um styttri útivistartíma.

Útivistarreglurnar eru samkvæmt barnaverndarlögum. Þeim er meðal annars ætlað að tryggja nægan svefn en hann er börnum og unglingum nauðsynlegur.  Samkvæmt 92. grein barnaverndarlaga eru útivistartímar barna (0 -18 ára) sem hér segir:

Útivistartími yfir sumartímann (1. maí til 1. september)

  • 12 ára og yngri mega vera úti til kl. 22
  • 13 til 16 ára mega vera úti til kl. 24

Útivistartími yfir vetrartímann (2. september – 30. apríl)

  • Börn 12 ára og yngri mega vera úti til kl. 20
  • Börn 13 til 16 ára mega vera úti til kl. 22

Verum samtaka!

Ár hvert hefur SAMAN hópurinn (samanhopurinn.is) hvatt foreldra til að kynna sér þær reglur sem gilda um útivistartíma barna og unglinga.