5. nóv. 2020

Ábendingar íbúa um fjárhagsáætlun - frestur til 12. nóvember nk

Íbúum Garðabæjar gefst kostur á að senda inn ábendingar og tillögur vegna fjárhagsáætlunargerðar fyrir árin 2021-2024.  Ábendingarnar geta t.d. snúið að tillögum til hagræðingar í starfsemi Garðabæjar, nýjum verkefnum sem bærinn ætti að sinna eða verkefnum sem leggja þarf áherslu á í starfsemi bæjarins.

  • Bæjarstjórn í beinni
    Fundur bæjarstjórnar Garðabæjar 15. apríl kl. 17 er í beinni útsendingu hér á vef Garðabæjar.

Íbúum Garðabæjar gefst kostur á að senda inn ábendingar og tillögur vegna fjárhagsáætlunargerðar fyrir árin 2021-2024. Allar ábendingar verða teknar til skoðunar á milli umræðna í bæjarstjórn. Ábendingarnar geta t.d. snúið að tillögum til hagræðingar í starfsemi Garðabæjar, nýjum verkefnum sem bærinn ætti að sinna eða verkefnum sem leggja þarf áherslu á í starfsemi bæjarins.

Frestur til að senda inn ábendingar hefur verið framlengdur til og með fimmtudagsins 12. nóvember nk. 

Samráðsgátt fyrir íbúa um fjárhagsáætlun Garðabæjar 2021 - smellið á hlekkinn fyrir neðan:

ÁBENDINGAR ÍBÚA UM FJÁRHAGSÁÆTLUN - SAMRÁÐSGÁTT

  • Við innskráningu má sjá ferninga fyrir sjö mismunandi yfirflokka, og má setja þar undir ábendingar og tillögur í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar Garðabæjar. Áttundi flokkurinn er merktur „Annað“ og þar má leggja fram tillögur sem ekki eiga heima undir yfirflokkunum sjö.
  • Einnig má ræða og færa rök fyrir og gegn ábendingum sem búið er að setja inn.
  • Þátttaka í samráðsgáttinni er valkvæð og vinnsla þeirra upplýsinga sem safnast byggir á samþykki þátttakenda sem gefið er við innskráningu.


Einnig er hægt að senda inn ábendingar um fjárhagsáætlun í gegnum skráningarform á vef Garðabæjar: Innsendingarform á vef Garðabæjar vegna ábendinga má finna hér.

Um fjárhagsáætlun Garðabæjar - vinnuferli

Fjárhagsáætlun Garðabæjar verður tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn Garðabæjar fimmtudaginn 19. nóvember 2020. Síðari umræða um fjárhagsáætlun er áætluð á fundi bæjarstjórnar fimmtudaginn 3. desember 2020.