30. sep. 2021

Ábendingar og tillögur íbúa vegna fjárhagsáætlunar

Íbúum Garðabæjar gefst kostur á að senda inn ábendingar og tillögur vegna fjárhagsáætlunargerðar fyrir árin 2022-2025.

  • Turn tekin úr kirkjuturni

Íbúum Garðabæjar gefst kostur á að senda inn ábendingar og tillögur vegna fjárhagsáætlunargerðar fyrir árin 2022-2025. Allar ábendingar verða teknar til skoðunar á milli umræðna í bæjarstjórn. Ábendingarnar geta t.d. snúið að tillögum til hagræðingar í starfsemi Garðabæjar, nýjum verkefnum sem bærinn ætti að sinna eða verkefnum sem leggja þarf áherslu á í starfsemi bæjarins.

Íbúar geta nú sent inn ábendingarnar á sérstakri samráðsgátt sem hefur verið sett upp vegna fjárhagsáætlunargerðarinnar. Þar er hægt að velja mismunandi flokka og setja inn ábendingar varðandi þann málaflokk, einnig er hægt að færa rök og setja inn athugasemdir við tillögur sem búið er að setja inn. Hægt er að senda inn ábendingar til 4. nóvember 2021.

Samráðsgátt fyrir íbúa um fjárhagsáætlun Garðabæjar 2022.

 

ÁBENDINGAR ÍBÚA UM FJÁRHAGSÁÆTLUN - SAMRÁÐSGÁTT 

  • Við innskráningu má sjá ferninga fyrir sjö mismunandi yfirflokka, og má setja þar undir ábendingar og tillögur í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar Garðabæjar. Áttundi flokkurinn er merktur „Annað“ og þar má leggja fram tillögur sem ekki eiga heima undir yfirflokkunum sjö.
  • Einnig má ræða og færa rök fyrir og gegn ábendingum sem búið er að setja inn.

Þátttaka í samráðsgáttinni er valkvæð og vinnsla þeirra upplýsinga sem safnast byggir á samþykki þátttakenda sem gefið er við innskráningu.

Einnig er hægt að senda inn ábendingar um fjárhagsáætlun í gegnum skráningarform á vef Garðabæjar: Innsendingarform á vef Garðabæjar vegna ábendinga má finna hér.

Um fjárhagsáætlun Garðabæjar - vinnuferli

Fjárhagsáætlun Garðabæjar verður tekin til fyrri umræðu í bæjarstjórn Garðabæjar fimmtudaginn 4. nóvember 2021. Síðari umræða um fjárhagsáætlun er áætluð á fundi bæjarstjórnar fimmtudaginn 2. desember 2021.