24. sep. 2020

Ábendingavefur um varasama staði í gatnakerfi, göngu- og hjólastígum

Garðabær leitar nú til íbúa sveitarfélagsins með því að opna ábendingavef sem verður opinn fram í miðjan október 2020. Þar er hægt að senda inn ábendingar um varasama staði og hindranir í gatnakerfi, göngu- og hjólastígum.

  • Íbúafundur um fjárhagsáætlun
    Þriðjudaginn 6. desember kl. 17:15 verður opinn kynningarfundur um fjárhagsáætlun. Íbúar eru velkomnir á fundinn í Sveinatungu á Garðatorgi 7 en einnig er fundurinn í beinni útsendingu hér á vef Garðabæjar.

Nú stendur yfir vinna við nýja umferðaröryggisáætlun Garðabæjar sem verður í gildi frá 2020-2024. EFLA verkfræðistofa heldur utan um vinnuna ásamt starfsfólki tækni- og umhverfissviðs Garðabæjar en umferðarmál heyra undir skipulagsnefnd Garðabæjar.

Markmið umferðaröryggisáætlunar er að vinna að bættu umferðaröryggi í bænum, fækka slysum og auka lífsgæði bæjarbúa sem og annarra sem ferðast um bæinn. Umferðaröryggi snýst að miklu leyti um hegðun íbúa í umferðinni en einnig um gatnakerfi, hraðatakmarkandi aðgerðir og ferðavenjur.

Hluti af vinnu umferðaröryggisáætlunar er að kortleggja gönguleiðir og ferðavenjur skólabarna en rafræn könnun á gönguleiðum skólabarna í Garðabæ var gerð haustið 2019. 

Á vef Samgöngustofu er hægt að lesa nánar um umferðaröryggisáætlanir sveitarfélaga.

Íbúafundur - fjarfundur - þriðjudaginn 29. september kl. 17

Í tengslum við gerð umferðaröryggisáætlunar Garðabæjar verður haldinn íbúafundur á fjarfundaformi þriðjudaginn 29. september nk. kl. 17:00 í beinni útsendingu á fésbókarsíðu Garðabæjar.

Ábendingavefur um varasama staði og hindranir í gatnakerfi, göngu- og hjólastígum

Garðabær leitar nú til íbúa sveitarfélagsins með því að opna ábendingavef sem verður opinn fram í miðjan október 2020. Þar er hægt að senda inn ábendingar um varasama staði og hindranir í gatnakerfi, göngu- og hjólastígum. Virk þátttaka íbúa skiptir máli og ábendingar íbúa eru mikilvægur grundvöllur fyrir bætt umferðaröryggi. Ábendingar sem verða sendar inn nýtast við gerð nýrrar umferðaröryggisáætlunar Garðabæjar.

Smellið á hlekkinn hér fyrir neðan til að fara inn á ábendingavefinn.

ÁBENDINGAVEFUR