1. des. 2021

Ábendingavefur - skilvirkasta leiðin fyrir beiðnir íbúa

Fyrir íbúa er ábendingavefurinn skilvirkasta leiðin að koma upplýsingum um það sem betur má fara í snjómokstri, hálkuvörnum og öðru sem viðkemur umbótum í umhverfinu til Garðabæjar

  • Séð yfir Garðabæ og Arnarnesvog
    Séð yfir Garðabæ og Arnarnesvog

Frá því í upphafi sumars hafa íbúar getað sent upplýsingar um það sem betur má fara í umhverfinu í bænum í gegnum nýjan ábendingavef Garðabæjar. Nú þegar veturinn hefur gert vart við sig hefst vinna við að hreinsa snjó og hálkuverja götur og stíga, þá er mikilvægt að fá upplýsingar frá notendum um hvað má betur fara í hálkuvörnum á gatna- og stígakerfi bæjarins.  Hægt er að skoða hvaða götur og stígar eru í forgangi og hvernig áætlunin um snjómokstur er sett upp á kortavef Garðabæjar undir "Samgöngur" og "Snjómokstur".

Gardabaer-og-kortavefur-1Ábendingar sem sendar eru inn í gegnum ábendingavefinn fara beint til Þjónustumiðstöðvar Garðabæjar til úrvinnslu.

ÁBENDINGAVEFUR - Smelltu hér til að setja inn ábendingu

Staðsetning á korti og lýsing á því sem þarf að laga

Fyrst þarf að velja staðsetningu á ábendingunni, annað hvort með því að slá inn heimilisfang eða með því að velja staðsetningu á korti. Þá birtast nokkrir valmöguleikar með mismunandi flokkum um hvað ábendingin er og svo þarf að setja inn góða lýsingu á því sem þarf að gera. Einnig er á auðveldan hátt hægt að láta mynd fylgja með til nánari útskýringa.

Tilgangur ábendingavefsins er að auðvelda íbúum að koma ábendingum sínum til skila og einnig að auka upplýsingaflæði til þeirra sem koma með ábendingar þar sem þeir sem senda ábendingar fá upplýsingar í tölvupósti um stöðu þeirra og þegar búið er að vinna úr því sem bent var á.

Flýtileið í ábendingavefinn er aðgengileg af forsíðu vefs Garðabæjar en einnig er hægt að sjá nánari upplýsingar hér.

Íbúar eru hvattir til að nota sér þessa leið til að koma ábendingum til bæjarins.

Abendingavefur-2

Athugið: Ábendingar til barnaverndar skal senda beint í gegnum ábendingaform barnaverndar.
Ef þú ert með almenna fyrirspurn skal senda tölvupóst á gardabaer@gardabaer.is