30. júl. 2019

Aðgerðaáætlun gegn hávaða í kynningu

Drög að aðgerðaáætlun Garðabæjar gegn hávaða árin 2018-2023 er kynnt hér á vef Garðabæjar og bæjarbúum og öðrum hagsmunaðilum er gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við áætlunina á meðan á kynningu stendur í 4 vikur eða til 27. ágúst 2019.

  • Séð yfir Garðabæ og Arnarnesvog
    Séð yfir Garðabæ og Arnarnesvog

Aðgerðaáætlun Garðabæjar gegn hávaða árin 2018-2023 var kynnt í umhverfisnefnd og skipulagsnefnd 13. febrúar 2019. Drög að aðgerðaáætlun Garðabæjar árin 2018-2023 er kynnt hér á vef Garðabæjar og bæjarbúum og öðrum hagsmunaðilum er gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við áætlunina á meðan á kynningu stendur í 4 vikur eða til 27. ágúst 2019. Hægt er að senda inn athugasemdir á netfang Garðabæjar, gardabaer@gardabaer.is , merkt aðgerðaáætlun gegn hávaða.

Aðgerðaáætlun Garðabæjar gegn hávaða 2018-2023.

Að loknum kynningartíma mun Garðabær taka athugasemdir sem borist hafa til umfjöllunar og gera breytingar á aðgerðaáætluninni ef ástæða þykir til. Gerð verður samantekt um þátttöku almennings sem innifelur upplýsingar um allar athugasemdir sem bárust ásamt meðhöldun þeirra.

Tilskipun Evrópusambandsins um umhverfishávaða (2002/49/EC) var innleidd á Íslandi með reglugerð um kortlagningu hávaða og aðgerðaáætlanir nr. 1000/2005. Samkvæmt reglugerðinni skal kortleggja hávaða og útbúa aðgerðaáætlanir fyrir þéttbýlissvæði með yfir 100.000 íbúa og vegna hávaða frá vegum með ársdagsumferð yfir 8.000 ökutæki (3 milljónir ökutækja á ári).

Aðgerðaáætlun Garðabæjar þjónar því hlutverki fyrir Garðabæ og íbúa ásamt því að vera skilagagn til Umhverfisstofnunar og Evrópusambandsins.
Aðgerðaáætlunin er unnin út frá niðurstöðum hávaðakortlagningar frá árinu 2017.