18. nóv. 2024

Aðventuhátíð Garðabæjar fer fram 30. nóvember

Aðventuhátíð Garðabæjar fer fram á Hönnunarsafni Íslands, Bókasafni Garðabæjar, göngugötunni á Garðatorgi og á Garðatorgi 7 laugardaginn 30. nóvember.

  • Aðventuhátíð Garðabæjar er 30. nóvember
    Aðventuhátíð Garðabæjar fer fram á Hönnunarsafni Íslands, Bókasafni Garðabæjar, göngugötunni á Garðatorgi og á Garðatorgi 7 laugardaginn 30. nóvember.

Garðbæingar fagna upphafi aðventu saman í miðbæ Garðabæjar þar sem pop-up markaður, lifandi tónlist, skapandi smiðjur og jólaball gleðja viðstadda. 

Svona lítur dagskrá Aðventuhátíðar út:

Pop-up markaður á göngugötunni

kl. 11-16 - Spennandi vörur sem gætu verið tilvaldar í jólapakkana!

Lifandi tónlist á göngugötunni

Kl. 13:00 – 14:30 - Barnakór Sjálandsskóla syngur jólalög. Jazztríó ásamt söngvurum flytja jólatónlist í notalegu umhverfi.´

Ó!róasmiðja í Hönnunarsafninu

Kl. 13-15 - Hönnunarteymið Þykjó leiðir smiðju, ilmandi kanilstangir og könglar mynda fallegt jólaskraut.

Jólaföndur á Bókasafni Garðabæjar

Kl. 13-15 - Búum til fallegt jólaskraut saman á safninu.

Jólaball á Garðatorgi 7

Kl. 14:20 – 15:00 - Barnakór Vídalínskirkju syngur og jólasveinar leiða söng og dans í kringum jólatréð.

Langleggur og Skjóða á Bókasafni Garðabæjar

Kl. 15 - Systkini jólasveinanna skemmta með jólasögu, söng og dansi.

Blásarasveitin við jólatréð

kl. 15:30 - Blásarasveit Tónlistarskóla Garðabæjar leikur jólasyrpu sem kemur öllum í jólaskap!

Frá Aðventuhátíð 2023.