18. des. 2020

Afgreiðslutími um jól og áramót

Afgreiðslutími ráðhúss Garðabæjar, Bókasafns Garðabæjar, Hönnunarsafns Íslands og sundlauga Garðabæjar um jól og áramót.

  • Frá upptöku aðventuþáttar
    Frá upptöku aðventuþáttar

Ráðhús Garðabæjar

Afgreiðslutími þjónustuvers Garðabæjar um jól og áramót:
Þorláksmessa: opið frá 8-16 (afgreiðslan lokuð í hádeginu frá 12-13 en svarað í síma)
Lokað á aðfangadag og jóladag.
Mánudag - miðvikudag 28.-30. desember, opið frá 8-16. (afgreiðslan lokuð í hádeginu frá 12-13 en svarað í síma)
Lokað á gamlársdag og nýársdag.

Vegna Covid-19 faraldursins eru íbúar og viðskiptavinir sem eiga erindi við bæjarskrifstofur Garðabæjar hvattir til að senda tölvupóst á gardabaer@gardabaer.is , nota netspjall eða hringja í þjónustuverið í síma 525 8500 til að takmarka komur á bæjarskrifstofurnar.  

Bókasafn Garðabæjar

Afgreiðslutími Bókasafns Garðabæjar Garðatorgi um jól og áramót:

Þorláksmessa 23.des. kl. 10-17
Lokað 24.-26. desember.
Mánudagur 28.des. kl. 10-17
Þriðjudagur 29.des. kl. 10-17
Miðvikudagur 30.des. kl. 10-17
Lokað 31.des-2. janúar.
Mánudagur 4.jan. kl. 10-17

Afgreiðslutími útibús á Álftanesi um jól og áramót:

Þorláksmessa  23.des. kl. 16-19
Lokað 24.-26. desember.
Mánudagur 28. des. kl. 16-19
Þriðjudagur 29.des. kl. 16-19
Miðvikudagur 30. des. kl. 16-19
Lokað 31. des.-1. janúar.
Mánudagur 4.jan. kl. 16-19

Vefur Bókasafns Garðabæjar.

Hönnunarsafn Íslands

Opnun yfir jól og áramót. 

Ath að það er ókeypis aðgangur inn á safnið fram að áramótum. 
Vefur Hönnunarsafns Íslands.

23. des. 12-17
24.-26. des lokað
27. des. 12-17
28. des. Lokað á mánudögum
29. des. 12-17
30. des. 12-17
31. des. Lokað
1. jan. Lokað
2. jan. 12-17

Sundlaugar og íþróttamannvirki í Garðabæ

Opnunartími sundlauga, Ásgarðslaugar og Álftaneslaugar, í Garðabæ um jól og áramót:

23. des: 06:30-18:00
24. des: 06:30-11:30
25. des: Lokað
26. des: Lokað
27. des:  Ásgarðslaug 8-18,  Álftaneslaug 9-18
28. des: Ásgarðslaug 06:30-22, Álftaneslaug 06:30-21
29. des: Ásgarðslaug 06:30-22, Álftaneslaug 06:30-21
30. des: Ásgarðslaug 06:30-22, Álftaneslaug 06:30-21
31. des: 06:30-11:30
1. janúar: Lokað

Hætt er að hleypa ofan í laugar 30 mínútum fyrir lokun.

Íþróttamannvirki:

Aðgangur að íþróttasölum til æfinga er samkvæmt æfingatöflum innan þessara opnunartíma.
Fjöldatakmarkanir gilda ofan í laugarnar og sundlaugargestir eru beðnir um að sýna tillitssemi og virða 2 metra regluna.
Mýrin og Sjáland: Lokað 24., 25., 26., 31. des og 1. janúar.

 

Starfsfólk Garðabæjar óskar íbúum Garðabæjar sem og viðskiptavinum gleðilegra jóla.