Afmælisveisla fyrir íbúa fædda 1976
Garðabær býður öllum þeim íbúum sem fagna 50 ára afmæli á þessu ári í afmælisboð.
Í tilefni þess að Garðabær fagnar 50 ára afmæli á árinu er boðið upp á fjölbreytta afmælisdagskrá sem spannar allt árið. Hluti af þeirri dagskrá er veisla þar sem öllum þeim íbúum Garðabæjar sem fæddir eru árið 1976 er boðið til.
Móttakan fer fram í Sveinatungu, fundarsal bæjarstjórnar Garðabæjar á Garðatorgi, þann 4. mars klukkan 17.00.
Þeir Garðbæingar sem eiga það sameiginlegt með Garðabæ að eiga 50 ára afmæli á árinu hafa fengið boðsbréf í pósthólfið sitt á island.is.
