Áhrif verkfalls á starfsemi Garðabæjar
Stéttafélagið Efling hefur samþykkt beiðni Garðabæjar um undanþágu fá verkfallsaðgerðum og samstarfi við að tryggja almannaöryggi og aðbúnað eldri borgara, barna og ungmenna og fatlaðs fólks á meðan að almenn starfsemi tekur mið að því að virða verkfallsrétt stéttarfélaga.
-
Leiksvæði við KInnargötu.

Með undanþágunum er mögulegt að halda úti mikilvægri starfsemi, svo sem akstri á heimsendum mat til eldri borgara, akstri á skólamat, sinna snjómokstri og hálkueyðingu og þá fékk bærinn einnig undanþágu vegna Samveitna- vatnsveitu og fráveitu.
Frístundaaksturs skólabarna og aksturs í íþróttir fellur ekki undir undanþágu frá verkfallsaðgerðum en gera má ráð fyrir starfsemin geti verið órofin í einhvern tíma þar sem starfsmenn er sinna akstri eru ekki í Eflingu og rekstraraðili hefur aðföng til 2 – 3 vikna.
Ætla má að áhrif verkfalls verði víðtæk og að skerða þurfi þjónustu bæjarins að einhverju leyti og verður fréttavefur bæjarins uppfærður með nánari upplýsingum.