3. ágú. 2022

Álftaneslaug lokuð í tvær vikur

Sundlaugin á Álftanesi verður lokuð frá og með 8. ágúst 2022 í um tvær vikur vegna viðhaldsvinnu við laugarnar og þrifa. 

  • Álftaneslaug
    Álftaneslaug

Uppfært 17. ágúst 2022:  Viðhaldsvinnan hefur tekið lengri tíma en áætlað var og fyrirséð að verkið tefst um einhverja daga, væntanlega verður sundlaugin opnuð um miðja næstu viku í kringum 25. ágúst en nánari upplýsingar verða settar inn eftir helgi um stöðu mála. 

Sundlaugin á Álftanesi verður lokuð frá og með 8. ágúst 2022 í tvær vikur vegna viðhaldsvinnu við laugarnar og þrifa. Stefnt er að því að opna laugina aftur laugardaginn 20. ágúst.

Líkamsrækt og íþróttasalir verða opnir, en báðar laugarnar , inni og úti verða lokaðar. 

Ásgarðslaug er opin mánudaga til föstudaga frá kl. 06:30 til 22:00 og um helgar frá kl. 08:00 til 18:00.