24. sep. 2021

Alþingiskosningar - kjörstaðir í Garðabæ

Kjörfundur vegna kosninga til Alþingis, er fram eiga að fara laugardaginn 25. september 2021, verður í íþróttahúsinu Mýrinni við Skólabraut (beygt inn af Bæjarbraut, á milli Hofsstaðaskóla og Fjölbrautaskólans í Garðabæ) og í hátíðarsal Álftanesskóla við Breiðumýri. Kjörfundur mun hefjast kl. 09:00 og standa til kl. 22:00.

  • Fánaborg með íslenska fánanum

Alþingiskosningar verða haldnar laugardaginn 25. september 2021.

Upplýsingar um kosningarnar eru að finna á kosningavef Stjórnarráðsins, kosning.is

Kjörfundur vegna kosninga til Alþingis, er fram eiga að fara laugardaginn 25. september 2021, verður í íþróttahúsinu Mýrinni við Skólabraut (beygt inn af Bæjarbraut, á milli Hofsstaðaskóla og Fjölbrautaskólans í Garðabæ) og í hátíðarsal Álftanesskóla við Breiðumýri. Kjörfundur mun hefjast kl. 09:00 og standa til kl. 22:00.

Auglýsing um kjörfund og kjörstaði í Garðabæ

Kjörfundur vegna kosninga til Alþingis, er fram eiga að fara laugardaginn 25. september 2021, verður í íþróttahúsinu Mýrinni og í hátíðarsal Álftanesskóla.

Kjörfundur verður í íþróttahúsinu Mýrinni eins og í forsetakosningum sumarið 2020. Er það gert til að tryggja nálægðarmörk og að umferð kjósenda verði með þeim hætti að inn- og útgangur úr kjördeildum sé ekki sá sami.

Skipting kjördeilda fer eftir stafrófsröð götuheita.
Í íþróttahúsinu Mýrinni verður kosið í eftirfarandi kjördeildum.
I. Kjördeild Aftanhæð – Brekkuás
Íslendingar búsettir erlendis
II. Kjördeild Brekkubyggð - Garðaflöt
III. Kjördeild Garðatorg - Holtsbúð
IV. Kjördeild Holtsvegur - Keldugata
V. Kjördeild Kinnargata – Langamýri
VI. Kjördeild Laufás - Mosagata
VII. Kjördeild Móaflöt - Strandvegur 1-19
VIII. Kjördeild Strandvegur 20-26 - Ögurás
Húsanöfn og bæir


Í Álftanesskóla verður kosið í eftirfarandi kjördeildum.
I. Kjördeild Asparholt – Lambhagi
II. Kjördeild Litlabæjarvör – Þóroddarkot
Húsanöfn og bæir


Athygli er vakin á því að kjósendur sem eiga heima í Prýðahverfi, Hleinum og stakstæðum húsum við Álftanesveg og á Garðaholti eru nú á kjörskrá í Álftanesskóla.

Á vefsíðu Þjóðskrár Íslands, skra.is, er hægt að nálgast nánari upplýsingar um hvar einstaklingar eru á kjörskrá.

Íslendingar sem búsettir eru erlendis og áttu síðast lögheimili hér á landi í Garðabæ eru á kjörskrá í I. kjördeild i íþróttahúsinu Mýrinni.

Kjörfundur mun hefjast kl. 09:00 og standa til kl. 22:00.

Munið að hafa meðferðis persónuskilríki.

Kjörstjórn Garðabæjar mun hafa aðsetur í íþróttahúsinu Mýrinni og hverfiskjörstjórn Álftaness á kennarastofu Álftanesskóla meðan á kjörfundi stendur.

Talning atkvæða fer fram hjá yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis sem hefur aðsetur í Kaplakrika, Hafnarfirði.

Kjörstjórn Garðabæjar
Soffía Eydís Björgvinsdóttir
Jóhann Steinar Ingimundarson
Snævar Sigurðsson

Auglýsing um kjörskrá Garðabæjar

Kjörskrá vegna kosninga til Alþingis sem fram eiga að fara laugardaginn 25. september 2021 mun liggja frammi almenningi til sýnis í þjónustuveri Garðabæjar í Ráðhúsinu við Garðatorg, frá og með þriðjudeginum 14. september til kjördags.

Á kjörskrá eru allir íslenskir ríkisborgarar sem skráðir voru með lögheimili í Garðabæ samkvæmt íbúaskrá Þjóðskrár Íslands 21. ágúst 2021 og fæddir eru 25. september 2003 og fyrr (18 ára þegar kosning fer fram).

Íslenskir ríkisborgarar, sem átt hafa lögheimili hér á landi eiga kosningarrétt í átta ár frá því að þeir fluttu lögheimili sitt af landinu, talið frá 1. desember næstum fyrir kjördag. (1. desember 2012). Þeir íslensku ríkisborgarar sem áttu lögheimili hér á landi fyrir þann tíma þurfa að sækja um til Þjóðskrár Íslands um að verða settir á kjörskrá.

Erlendir ríkisborgarar eiga ekki kosningarrétt og eru því ekki á kjörskrá.

Á vefsíðu Þjóðskrár Íslands, skra.is , er hægt að nálgast nánari upplýsingar um hvort aðilar eru á kjörskrá eða ekki. Leiðbeiningar og upplýsingar um kosningarnar er einnig að finna á vefsíðunni kosning.is

Athugasemdir við kjörskrá skulu berast bæjarstjórn, en leiðréttingar á kjörskrá má gera til kjördags.

Bæjarritari

Kjörstaður í íþróttahúsinu Mýrinni við Skólabraut

Mýrin kosningarfyrirkomulag - teikning sem sýnir staðsetningu kjörklefa

Götuheiti og kjördeildir í Mýrinni

Kjörstaður í nýjum hátíðarsal Álftanesskóla, við Breiðumýri Álftanesi

Götuheiti og kjördeildir í Álftanesskóla